| Rannsóknir á fjölbreytileika
hornsíla
Undanfarið hefur áhugi vísindamanna
á vistfræði og þróun breytileika innan tegunda
stóraukist. Ferskvatnsfiskar á norðurslóðum
eru sérstaklega áhugaverðir í þessu sambandi.
Íslensk vatnakerfi eru óvenju fjölbreytt að gerð
en hér eru fáar tegundir vatnafiska. Aðstæður
hérlendis eru því óvenjugóðar til
að rannsaka þróun fjölbreytileika innan tegunda.
Erlendar rannsóknir sýna að hornsíli eru breytileg
og í sumum tilfellum hafa þróast samsvæða
afbrigði og tegundir. Hornsíli er útbreidd tegund hérlendis
er hefur lítið verið rannsökuð. Verkefnið byggir
á forverkefni sem hefur staðfest að fjölbreytileiki
íslenskra hornsíla er mjög mikill og að samsvæða
afbrigði finnast í nokkrum vötnum. Heildarmarkmið er
að auka þekkingu á vistfræði og þróun
íslenskra hornsíla. Undirmarkmið og tilgátur
eru: 1) lýsing samsvæða afbrigða, og aðlagana
að ólíkum búsvæðum og fæðu;
2) að kanna hvort mismunandi stöðugleiki umhverfisins
tengist þróun samsvæða afbrigða 3) að
greina hvernig áhrifum umhverfis og erfða á mótun
svipgerðarinnar er háttað; 4) prófa hvort mismunur
í samkeppni við aðrar tegundir og í afránshættu
koma fram í sérstökum aðlögunum í svipgerð
og vistnýtingu. Rannsóknirnar beinast að stofnum
sem taldir eru henta til prófunar á ofangreindum tilgátum.
Rannsóknunum er ætlað að auka skilning á
þeim vistfræðilegu þáttum sem valda þróun
breytileika og svara mikilvægum spurningum um myndun stofna
og tegunda.
Rannsóknaverkefnið hefur starfað frá
1998. Vísindasjóður styrkti verkefnið 1998-1999 með
forverkefnisstyrk og 2000 – 2002 með rannsóknastyrk. Tveir nemendur
hafa lokið M.Sc. námi í tengslum við verkefnið
Lisa Doucette 2001 og Bjarni K. Kristjánsson 2001. Greinar sem komið
hafa út um verkefnið Bjarni K. Kristjánsson o.fl. 2001a
b (pdf)
Rannsóknir á grunnvatnsmarflóm
Síðan 1998 hafa fundist um 150 einstaklingar
marflóa á tveimur svæðum í Þingvallavatni.
Greinilegt er að hér er um að ræða grunnvatnsmarflær,
sem tilheyra tveimur áður óþekktum tegundum. Þessi
fundur er einstakur í sinni röð því bæði
eru hér er um að ræða nýjan hóp lífvera
(marflær) í íslensku ferskvatni og fyrsti fundur á
íslenskum grunnvatnslífverum. Grunnvatnsmarflær eru
um 12% af öllum þekktum tegundum marflóa. Þær
eru útbreiddar víða, t.d. í mið Evrópu
og Suðurríkjum Bandaríkjanna en yfirleitt í smáum
einöngruðum stofnum. Margt er á huldu um uppruna og þróun
grunnvatnsfánu og lítið er vitað um vistfræði
þeirra. Meginmarkmið verkefnisins er að kanna vistfræði
og útbreiðslu íslenskra grunnvatnsmarflóa. Verkefnið
skiptist í þrjú undirmarkmið: 1) Að kanna útbreiðslu
og þéttleika grunnvatnsmarflóa innan eldvirka svæðisins
á Íslandi. 2) Að kanna vöxt, afkomu, frjósemi
og fæðu hjá íslenskum grunnvatnsmarflóm.
3) Að kanna skyldleika grunnvatnsmarflóa innan og milli þeirra
tveggja svæða þar sem þær finnast. Verkefnið
mun auka skilning okkar á fjölbreytileika íslenskra
grunnvatnsmarflóa. En er einnig mikilvægt innlegg í
umræður vísindamanna um uppruna grunnvatnsfánu
og um uppruna og fjölbreytileika íslensku fánunnar.
Upplýsingar um vistfræði grunnvatnsmarflóa munu
auka skilning vísindamanna á líffræði þessara
lífvera, sem hingað til hafa verið að skornum skammti.
Niðurstöður rannsóknarinnar munu sýna enn betur
sérstöðu íslensks lífríkis, notkunar
og verndargildi þess. Verkefnið er á fyrstu stigum og
nú er unnið við að lýsa hinum nýfundnu
tegundum.
|