| Framundan |
Nýjustu fréttir |
Athugið |
Fagmennska til
framtíðar
- betur vinnur vit en strit
Reiðkennslusýning Hólaskóla í samvinnu
við Hestamannafélagið Fák og Ástund verður
í Reiðhöllinni í Víðidal sunnudaginn
4. maí kl. 14. Forsala aðgöngumiða sem kosta 1000 kr
í Ástund. Nánar.
Hin árlega
SKEIFUKEPPNI
1. maí kl. 14.
Kaffiveitingar í boði skólans á eftir.
|
> 9. maí útskrift hestafræðinga og leiðbeinenda.
> 20. maí kl.14 verður haldið málþing
um tölt hér á Hólum
á vegum
Söguseturs
íslenska hestsins.
Dagskrá.
> 31. maí útskrift C-reiðkennara og tamningamanna
> Gamlir nemendur!
Eigið þið myndir frá árum ykkar á
Hólum? - nánar
> Stjörnukort
af Hólum!
> Tunglið séð
frá Hólum.
Ljósmyndari: Broddi Reyr Hansen |
Á aðalfundi KS var Skúla Skúlasyni
og Hólaskóla veitt viðurkenning Menningarsjóðs
KS "fyrir sérstakt framtak á sviði skólamála
í Skagafirði." Þetta er mikil viðurkenning fyrir skólann
og það starf sem hér hefur verið unnið og undirstrikar
hin sterku tengsl sem tekist hefur að mynda við atvinnulífið
og samfélagið í Skagafirði. Gripurinn er unninn af
Jóni Snorra á stofu Jens gullsmiðs.

> Frá opnu húsi og málþingi
um nýjungar í ferðaþjónustu 7. apríl
> Frá háskólahátíð
Hólaskóla
> Hólarannsóknin fær alstöð
Hólarannsóknin fékk 1.600 þús. til
að kaupa alstöð fyrir fornleifarannsóknir í
Skagafirði frá Rannís. Alstöð er eitt
af mikilvægustu tækjum fornleifafræðinga. Um er að
ræða mælingartæki til að staðsetja þ.e.
hnitsetja og hæðarmæla gripi, jarðlög og svo framvegis.
> Alþjóðlegt réttindanámskeið
FEIF
fyrir kynbótadómara var haldið á Hólum
Námskeiðið var haldið dagana 24.-28. mars.
Alls voru þátttakendur um 20 talsins og komu þeir frá
9 þjóðlöndum. Kennarar voru Víkingur Gunnarsson
og John Siiger Hansen en prófdómari Ágúst Sigurðsson.
Nánar
um námskeiðið og myndir!
> Tröllaskagaverkefnið svonefnda gengur út á
gerða göngukorta. Merkilegur áfangi er nú um það
bil að nást: fyrsta kortið er nánast tilbúið.
Stefnt er að því að gefa út 8-10 kort og ná
þau yfir svæðið frá nyrsta hluta Tröllaskaga,
við Siglufjörð, suður á Nýjabæjarfjall.
Fjölmargir hafa komið að verkefninu á einn eða
annan hátt, en Bjarni K. Kristjánsson
stjórnar því, Hjalti
Þórðarson hefur unnið að kortagerðinni
og Bjarni Guðleifsson hefur tekið þátt í að
skrifa leiðalýsingar.Lesa meira.
> Jón Aðalsteinn Baldvinsson verður vígslubiskup
í
Hólabiskupsdæmi samkvæmt ákvörðun Sólveigar
Pétursdóttur, kirkjumálaráðherra.
Sjá
nánar á vef Þjóðkirkjunnar.
> Vettvangsskóli fyrir fornleifafræðinema
á Hólum
> Kertavaka gegn stríði - var haldin víða
um heim m.a. á hlaðinu á Hólum þann 16.
mars. Broddi mundaði myndavélina að
þessu tilefni.
>Atkvæði féllu jafnt milli þeirra séra
Jóns Aðalsteins Baldvinssonar og séra Kristjáns
Vals Ingólfssonar í síðari umferð kosninga
til vígslubiskups á Hólum. Sjá
nánar frétt á vef Þjóðkirkjunnar.
> Skyndihjálparnámskeiði lokið. Skyndihjálparnámskeið
eru hluti af náminu á öllum brautum skólans,
en í þetta sinn var boðið uppá námskeiðið
fyrir starfsfólk eldhúss, ferðaþjónustu
og ferðamálabrautar - auk áhugasamra úr öðrum
deildum. Skagafjarðardeild Rauða Kross Íslands sér
um námskeiðin og Karl Lúðvíksson var leiðbeinandi.
Þátttakendur voru mjög ánægðir með
námskeiðið. Myndir!
>
Kristján Valur og Jón Aðalsteinn hlutu flest
atkvæði í vígslubiskupskjöri.
Á kjörskrá voru 63. Niðurstöður eru
þær að sr. Kristján Valur Ingólfsson hlaut
27 atkvæði, sr. Jón Aðalsteinn Baldvinsson 18, sr.
Dalla Þórðardóttir 14 og sr. Guðni Þór
Ólafsson 4 atkvæði. Nú verður kosið á
milli þeirra Jóns Aðalsteins og Kristjáns Vals
og sá er meirihluta hlýtur telst þá réttkjörinn
vígslubiskup.
Sjá nánar
frétt á vef Þjóðkirkjunnar.
> Mannfjöldi á Hólum og uppruni
fólks sem við skólann starfar. ATHUGIÐ BÆST
HEFUR VIÐ!
> Ráðurnautafundur er settur í dag. Starfsmaður
okkar Elín Berglind Viktorsdóttir flytur þar fyrirlestur:
Landnýting
og ferðaþjónusta.

> Námskeið:
Haldið var námskeið fyrir verðandi B-reiðkennara
hér heima á Hólum í desember sl. Eyjólfur
Ísólfsson yfirreiðkennari við Hólaskóla
hafði umsjón með námskeiðinu. Aðrir kennarar
voru Sigurbjörn Bárðarson og Reynir Aðalsteinsson.
Benedikt Líndal var prófdómari. Myndir
frá námskeiðinu.

Áramótagleðin var mikil á Hólum og hefur
sjaldan verið skotið upp fleiri flugeldum!
> Nýja reiðhöllin var formlega
tekin í notkun 7. desember. Nánar
> Þingvallabókin tilnefnd til Íslensku
bókmenntaverðlaunanna! Ritstjórar
bókarinnar eru Pétur M. Jónasson og Páll Hersteinsson.
Ýmsir vísindamenn eru höfundar efnis og má þar
meðal annarra nefna Bjarna Kristófer Kristjánsson og
Skúla Skúlason. Til hamingju!
> Samningur undirritaður á milli
Hólaskóla, Ferðaþjónustu bænda og
Félags ferðaþjónustubænda.
Nánar

> Jólahlaðborðið
tókst vel. Myndir.
> Hólarannsóknin fær
aftur hæsta styrkinn sem veittur er til fornleifarannsókna
úr Kristnihátíðarsjóði. Sjá
nánar á vef forsætisráðuneytisins.

> Miklir listamenn komu
saman síðasta þriðjudag nóvembermánaðar
og skáru laufabrauð til að leggja á jólahlaðborðið.Nokkrar
myndir.

> Nemendur frá MA heimsækja Hóla
Árlega koma nemendur úr Menntaskólanum á
Akureyri í námsferð til okkar. Þeir komu að
þessu sinni 25. nóvember. Fleiri myndir
frá heimsókninni.
> Hólamannafélagið
stóð fyrir hugstormunarfundi þar sem fjallað var um
möguleg verkefni félagsins. Skólanefnd, undirbúningsnefnd
að endurvakningu félagsins, stjórn félagsins og
nokkrir fulltrúar skólans voru boðaðir á fundinn.
> Eyjólfur
Ísólfsson knapi ársins. Sjá
grein á vef Eiðfaxa.
> Seinni hluti námskeiðsins
Betra
bú afstaðinn.Nánar
> Kynningardagur
deilda tókst mjög vel. Nánar
> Bændaglíman er komin á
fullt
Föngulegur hópur mætti á mánudaginn
var. Tímarnir eru á mánudögum og fimmtudögum
kl. 20.
> Vígslubiskupskjöri frestað
fram yfir áramót. Nánar
 |
Hólaskóli gerist vottunaraðili
fyrir Green Globe 21
NÁNAR |
> Á hinni árlegu
ferðamálaráðstefnu sem haldin var í Stykkishólmi
17. október síðastliðinn talaði samgönguráðherra
sérstaklega vel um ferðamálabraut Hólaskóla.
Þar sagði hann m.a.
Aukin menntun og færni starfsfólks
í ferðaþjónustu er mikilvægur hornsteinn
greinarinnar. Og hvað þau mál varðar er ég
hvað stoltastur af samstarfi ráðuneytis míns og Hólaskóla
um uppbyggingu fjarnáms við skólann. Þar er kominn
flötur til að fólk sem starfar í ferðaþjónustu
eða hyggur á störf á þeim vettvangi geti menntað
sig án þess að gera svo róttækar breytingar
á högum sínum sem hefðbundið nám krefst.
Ræða
samgönguráðherra
> Gamall
lykill í pósti! nánar.
> Kirkjugarður
finnst í Keldudal í Hegranesi. Beinagrindurnar eru á
Hólum! Nánar
> Vel
tókst til með grillveislu sem haldin var fyrir nemendur í
gærkvöldi. Skúli og Helgi grilluðu af sinni allkunnu
snilld gómsætt lambakjöt frá KS. Seinna um kvöldið
fóru draugar staðarins af stað og er ekki laust við
að sumir hafi hræðst... en allir kynntust gömlum sögum
sem gerst hafa á Hólum.
> Hólamannafélagið - félag hollvina Hólaskóla
var
endurvakið á afmælishátíðinni þann
7. september síðastliðinn. Nánar.
> Unnið hefur verið að mótun
umhverfisstefnu
fyrir
Hólastað og leit hún dagsins ljós 7. september.
Elín Berglind Viktorsdóttir umhverfisfræðingur
hefur stýrt þessu verki. Hún segir athugasemdir
vel þegnar. Næstu skref í vinnunni felast í að
gera framkvæmdaáætlun. Umhverfisstefnan á ekki
að vera orðin tóm og vænst er þátttöku
allra í því að ganga vel um náttúru
og umhverfi Hjaltadals bæði í leik og starfi.

> Fjarnemandinn fljúgandi
Lúðvík Þór Blöndal á Blöndósi
er nemandi á ferðamálabraut og stundar námið
í fjarkennslu. Hann mætti í staðbundna kennslu
á Hólum í flugvél. Fleiri
myndir!
> Frá brautskráningu 7. september
2002
Frá hátíð í tilefni
120 ára afmælis Hólaskóla
> Stund í kirkjunni 11. september 2002
Samgönguráðherra Færeyja og Íslands ásamt
föruneyti komu að Hólum í tengslum við ráðstefnuna
VestNorden. Haldin var helgistund í kirkjunni til að minnast
atburðanna í Bandaríkjunum fyrir einu ári.

> Eyjólfur
Ísólfsson yfirreiðkennari Hólaskóla var
valinn hestamaður ársins 2002 hjá UMSS.
>
Hólahátíð
tókst með ágætum
Í guðsþjónustunni
þjónaði fyrir altari herra Karl Sigurbjörnsson biskup
Íslands ásamt fleiri prestum úr Hólastifti.Predikun
flutti séra Gunnlaugur Garðarsson. Kirkjukór Glerárkirkju
söng undir stjórn Hjartar Steinbergssonar, organista.
Margir prestar voru viðstaddir og einnig var athöfnin vel sótt
af öðrum gestum.
Í hátíðarsamkomunni
seinna um daginn hélt herra Sigurður Guðmundsson vígslubiskup
ávarp. Þar var herra Bolli Gústavsson vígslubiskup
kvaddur en hann lét af störfum um áramót. Af
því tilefni ávarpaði hann samkomuna. Benedikt Ingólfsson
söng nokkur lög við undirleik Jóns Bjarnasonar. Guðni
Ágústsson landbúnaðarráðherra flutti
síðan ræðu.
Eftir samkomuna tendraði Bolli
Gústavsson fyrsta kertið á bænastjaka sem Farestveit
fjölskyldan gaf til minningar um hjónin Steinvöru Benónýsdóttur
og Sigurð Pálmason kaupmann á Hvammstanga, nemanda Hólaskóla
1903-1905. Hönnuður er Gunnsteinn Gíslason listamaður.
Ljósberinn er staðsettur í turninum.
> Eyjólfur
Ísólfsson yfirreiðkennari Hólaskóla og
Rás frá Ragnheiðarstöðum kræktu sér
í Íslandsmeistaratitil í tölti. Haukur Tryggvason
(gamall Hólanemi) og Dáð frá Halldórsstöðum
lentu í öðru sæti. Sjá
nánar frétt á Eiðfaxavefnum.
> Sögusetur
íslenska hestsins undirritar samkomulag á Landsmóti.
Sjá
frétt á Eiðfaxavefnum
> Kemur
spánskt fyrir sjónir!
> Sögusetur íslenska hestsins
er
komið með vefsíður. Skoðið!

> Anna Bretaprinsessa,
Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands og fylgdarlið
heimsóttu Hóla tvívegis. Þau fóru m.a.
í reiðtúr og snæddu hádegisverð.
Myndir.
> Eyjólfur
Ísólfsson yfirreiðkennari Hólaskóla sigrar
töltkeppni á Landsmóti.
> Þrenna
frá Hólum hlýtur heiðursverðlaun á
Landsmóti.

> Tómas Ingi
Olrich hóf formlega fornleifauppgröft á Hólum
1. júlí. Sjá síður um Hólarannsóknina.
> Nokkrar myndir
og dagskrá frá alþjóðlegri
ráðstefnu um atferli hesta sem haldin var á Hólum
13.-15. júní.
> Brautskráning tamningamanna sem
eru nemendur hrossabrautar af 2. ári fór fram 1. júní.
Nánar.

> Hreinsunardagurinn
tókst vel! Nánar
> Nemendur ferðamálabrautar
og nokkrir fylgifiskar ásamt kennurunum Bjarna Kristófer,
Helga og Skúla fóru í vettvangsferð í tengslum
við námskeiðið Náttúra Íslands.
Hér
eru heilmargar myndir sem Bjarni tók.
> 21 nemandi var
útskrifaður af hrossabraut 11. maí. Þetta voru
hestafræðingar og leiðbeinendur sem nú hafa lokið
eins árs námi við skólann. Nánar.
> Viljayfirlýsing
um samstarf Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Hólaskóla
var undirrituð 11. maí.- Nánar
> Hólaskóli
býður upp á framhaldsnám í fiskeldi á
háskólastigi næsta haust. Námið er ætlað
starfandi fiskeldisfræðingum og þeim sem vilja bæta
við sig þekkingu um fiskeldi, að loknu öðru háskólanámi.
Sérstaklega verður fjallað um ýmsa þætti
sem tengjast fiskeldi á Íslandi, nýjungum í
greininni og þeim nýju möguleikum sem menn eygja í
fiskeldi í framtíðinni. Námið felst í
fyrirlestrum og verkefnavinnu ásamt mikilli áherslu á
verklega kennslu. Til greina kemur að bjóða hluta af því
í fjarnámi. Sjá námskeiðslýsingar.
|
Gæðaátak
í hestatengdri ferðaþjónustu
Þeir sem reka hestatengda ferðaþjónustu
og hafa áhuga á að taka þátt í verkefninu
og eða fræðast nánar um það eru vinsamlegast
beðnir um að hafa samband sem fyrst.Um verkefnið.
> Leikfimi
Íþróttatímar innan
húss á þriðjudögum og fimmtudögum kl.
17.30.
>Umgengni um bíla
Það eru vinsamleg tilmæli til
þeirra sem nota bifreiðar skólans að ganga vel um
þær, taka allt úr þeim sem þeim ekki
tilheyrir og skola af þeim áður en þeim er
skilað. Skilum bílunum eins og við viljum koma að þeim.
> Netfangalisti
nemenda í staðbundnu námi á Hólum
> Uppfærður
netfangalisti starfsmanna Hólaskóla og samstarfsstofnana
á Hólum.
Ef þú
vilt senda póst á alla er auðvelt að
afrita
romsuna hér.
> Hólaskóli
með aðgang að ordabok.is
- upplýsingar um aðgang veitir Broddi.
> Heilbrigð sál í hraustum
líkama
> Stubbaleikfimi
kl. 17-18 á miðvikudögum fyrir börn sem eru fædd
1997-1999. Ásta Kristjana kennir.
> Leiðbeiningar
til kennara sem nota fartölvurnar í kennslustofunum.
> Í stjórn Nemendafélags
Hólaskóla 2002-3 sitja:
Helga Dís Gísladóttir
ferðamálabraut
Daníel Níelsson fiskeldisbraut
Hafliði Þ. Brynjólfsson
f.h. hestfræðinga og leiðb.
Helle Laks f.h. tamningamanna
Nemar á 2. ári fiskeldisbrautar
eiga eftir að kjósa sinn fulltrúa.
> MINNT ER Á: Notkun á
tölvuveri skólans er einungis heimil nemendum og starfsmönnum
Hólaskóla og öðrum stofnunum sem starfa í
húsnæði skólans. Börnum og gestum skal einungis
heimill aðgangur í fylgd ábyrgðarmanns (starfsmanns).
> Skoðið
bænastjakann sem afhentur
var á Hólahátíð. Gefendur eru Farestveit
fjölskyldan og er gjöfin til minningar um hjónin Steinvöru
Benónýsdóttur og Sigurð Pálmason kaupmann
á Hvammstanga, nemanda Hólaskóla 1903-1905. Hönnuður
er Gunnsteinn Gíslason listamaður. Stjakinn er staðsettur
í turninum.
> Margir heimsækja
vef Hólaskóla
http://www.holar.is/status/
Það er ljóst hvert
auglýsendur ættu að snúa sér!!
> Bolir með afmælismerkinu
til sölu hjá ferðaþjónustunni.
> Rannsóknar- og þróunarverkefni
á gæðum í hestatengdri ferðaþjónustu
á Íslandi, á vegum Hestamiðstöðvar Íslands,
SAF og Hólaskóla.
Viltu vera með?

> Skoðið sýningu
í tilefni af 120 ára afmæli skólans. Hún
er staðsett á ganginum við sundlaugina.
> Nemendur og starfsmenn
skólans hafa fengið aðgang að
WorldFeng.
Nauðsynlegt er að nota lykilorð og má fá upplýsingar
um það hjá Víkingi.
Lykilorðinu er breytt reglulega.
> Ákveðið
hefur verið að starfsfólk á Hólum fái
ókeypis
í sund og gufu!
Áríðandi er að
fólk skrái sig hjá sundlaugarverði í hvert
sinn sem farið er í sund.
Sjáumst á sundi.
Skúli
>Frá
UM-hópnum
> Sundlaug,
bændaglíma og
almenn hreyfing
>Árangurstjórnunar-
samningur
>Gestir og gestgjafar:
skýrsla til sölu |
|
|
|
Framundan
Fornleifarannsóknir sumarið
2002
Ráðstefna
í Norræna húsinu laugardaginn 18. janúar 2003
á vegum Félags íslenskra fornleifafræðinga
11:00 ? 11:30 Skálholt, Gavin Lucas
11:30 ? 12:00 Skriðuklaustur, Steinunn Kristjánsdóttir
12:00 ? 12:30 Gásar, Howell Roberts
12:30 ? 13:00 Hlé
13:00 ? 14:00 Hofstaðir og Sveigakot, Orri Vésteinsson,
Gavin Lucas
14:00 ? 14:30 Kirkjubæjarklaustur, Kristján Mímisson
14:30 ? 15:00 Þingvellir, Adolf Friðriksson
15:00 ? 15:15 Uppmæling rústa, Garðar Guðmundsson
15:15 ? 15:45 Kaffi
15:45 ? 16:15 Hólar í Hjaltadal, Ragnheiður Traustadóttir
16:15 ? 16:30 Fornleifagrunnur Evrópu, Oscar Aldred
16:30 ? 17:00 Reykholtskirkja, Orri Vésteinsson
17:00 ? 17:30 Skálavík, Ragnar Edvardsson
17:30 ? 18:00 Baffins Island, Guðmundur Ólafsson
Það hefur tæpast farið fram hjá nokkrum manni
að nú í sumar hefur óvenjumikið verið
um fornleifauppgrefti um allt land. Er það helst nýstofnuðum
Kristnihátíðarsjóði að þakka, en
sjóðurinn var stofnaður til að minnast þess að
1000 ár eru liðin frá því að kristinn
siður var lögtekinn á Íslandi. Hlutverk sjóðsins
er tvíþætt; að efla fræðslu og rannsóknir
á menningar- og trúararfi þjóðarinnar og
að styrkja fornleifarannsóknir.
Við fyrstu úthlutun úr Kristnihátíðarsjóði
var 96 milljónum úthlutað til ýmissa verkefna,
þar af 48 milljónum til fornleifarannsókna víðs
vegar
um landið. Rannsóknunum er ætlað að varpa
ljósi á okkar merkustu sögustaði og efla samstarf
þeirra sem að fornleifarannsóknum standa.
Munar auðvitað mestu um Kristnihátíðarsjóð,
en ýmsir aðrir aðilar hafa veitt verkefnum á sviði
fornleifafræði tilstyrk á liðnu ári, s.s.
sveitarfélög, byggðasöfn og Rannís.
Á ráðstefnu Félags íslenskra fornleifafræðinga
verður fjallað um allar helstu rannsóknirnar í stuttu
máli. Fjölmiðlum, sem áhuga hafa á efninu,
er bent á að hafa samband við Garðar Guðmundsson
(8646789) eða Ragnheiði Traustadóttur (6998256).
Hin nýja reiðkennsluaðstaða
formlega opnuð
Hólaskóli tekur í notkun nýja reiðkennsluaðstöðu
laugardaginn 7. desember og hefst athöfnin kl. 14. Meðal
annars mun Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra
flytja ávarp, opna aðstöðuna, og kennarar og
nemendur skólans sjá um reiðsýningu. Dagskráin
endar með kaffiveitingum heima í skólahúsinu og
eru allir hjartanlega velkomnir.
Hólaskóla hefur sárlega skort aðstöðu
af þessu tagi um alllangt skeið enda hefur umfang á
starfsemi hrossabrautar skólans vaxið mjög á síðustu
árum. Námið hefur orðið miklu sérhæfðara
og vægi verklegs náms í reiðmennsku, tamningum
og reiðkennslu stóraukist. Skólinn býður nú
upp á 3 ára nám og er hluti þess á háskólastigi.
Nemendafjöldinn hefur að sama skapi aukist og eru nemendur 46
sem stunda nám á brautinni í vetur. Með
tilkomu hinnar nýju aðstöðu gerbreytist aðstaða
skólans til að sinna þeirri miklu þörf sem
þegar er til staðar í starfseminni og býður
um leið upp á mikla möguleika til enn frekari umsvifa og
þróunar námsins, námskeiðahalds og rannsókna.
Hin nýja aðstaða er sérhannað 1500 fermetra
reiðkennsluhús. Reiðsalurinn er 1200 fermetrar og auk þess
áhorfendasvæði sem ætlað er fyrir liðlega
200 manns. Framkvæmdir hófust snemma sumars og er fyrsta
áfanga þeirra nú lokið og húsið tilbúið
undir kennslu. Eigandi hússins er Þrá
efh. sem er fyrirtæki í eigu Kaupfélags Skagfirðinga
og Friðriks Jónssonar ehf. og mun notkun Hólaskóla
á húsinu byggja á sérstökum leigusamningi,
en miðað er við að skólinn eignist húsið
á næstu misserum. Byggingarmeistari var Ólafur
Friðriksson, um jarðvinnslu sá Króksverk ehf., RKS
um raflagnir, Gísli Sigurðsson um hönnun rafkerfis, Jón
Geirmundsson um vatnslagnir, Stoð ehf. um hönnun og eftirlit og
arkitekt hússins er Björn Kristleifsson.
ÁTTU MYNDIR FRÁ ÁRUNUM ÞÍNUM
Á HÓLUM ?
Bændaskólinn á Hólum hóf
starfsemi sína árið 1882 og verður 120 ára
afmælisins minnst með ýmsum hætti á afmælisárinu,
sem hefst þann 11. maí n.k. Nánari umfjöllunar
um afmælið er að vænta í næsta Bændablaði.
Skólinn óskar liðveislu lesenda við söfnun á
myndefni úr sögu skólans. Tilefnið er annars vegar
sýning á munum og myndum úr skólastarfinu í
tilefni afmælisins í ár og hins vegar undirbúningur
að því að gera sögu skólans nánari
skil á 125 ára afmælinu árið 2007. Skólinn
á töluvert af myndum af skólastaðnum, auk skólaspjaldanna
sígildu en minna er til af myndum úr skólalífinu.
Lumir þú á einhverjum myndum sem kunna
að eiga erindi á sýningu um skólastarfið í
gegnum tíðina þætti okkur fengur í að
fá þær sendar. Gott væri að fá lýsingu
á hvað sést á hverri mynd og eins nöfn fólks
er þar kann að vera. Líklegt má telja að minna
sé um mjög gamlar myndir og væri mikill fengur að
fá sem flestar af þeim. Við munum að sjálfsögðu
gæta þeirra mynda sem berast og senda eigendum þær
tilbaka eigi síðar en í lok afmælisársins.
Við stefnum á að opna sýninguna 11. maí og
þyrftum því að fá myndir sem fyrst. Vinsamlega
sendið þær til Guðrúnar Helgadóttur,
Hólaskóla, Hólum í Hjaltadal, 551 Skagafjörður.
Hún veitir einnig frekari upplýsingar, sími skólans
er 455 6300. Við vonum að Hólanemar fyrr og síðar
taki vel í þetta erindi okkar og hlökkum til að heyra
frá þeim.
Nýjustu fréttir
Samningur á
milli Hólaskóla, Ferðaþjónustu bænda
og Félagas ferðaþjónustubænda undirritaður
Það
er mat aðila að samstarf Ferðaþjónustu bænda
hf, Félags ferðaþjónustubænda og Ferðamáladeildar
Hólaskóla sé þeim mikilvægt og líklegt
til að skila miklum og vaxandi árangri í uppbyggingu
ferðaþjónustu í dreifbýli á Íslandi,
sem er liður í hinu víðtæka hlutverki landbúnaðarins
og byggðaþróun.
Hingað til hefur samstarfið verið á grundvelli einstakra
verkefna, en aðilar eru sammála um að treysta grundvöll
þess með því að stofna til
reynslu árin 2002-2005 starf gæðastjóra ferðaþjónustubænda
með gæðastjórnun, endurmenntun og leiðbeiningaþjónustu
sem meginviðfangsefni. Gæðastjóri stýri verkefnum
innan ramma samningsins, er tengiliður aðila samningsins og mótar
tillögur um framhald samstarfsins auk kennslu á sínu
fagsviði við ferðamálabraut Hólaskóla.
Myndin var tekin við undirritunina sem fram fór
á Jólahlaðborði Hólaskóla. Frá
vinstri: Skúli Skúlason skólameistari, Marteinn Njálsson
formaður Félags ferðaþjónustubænda og
Sævar Skaptason framkvæmdastjóri Ferðaþjónustu
bænda.
Námskeiðið
Betra bú
Í apríl í vor var farið af stað með
námskeiðið Betra bú, sem felur í sér
gerð landnýtingaráætlana á bújörðum.
Þetta námskeið er samstarfsverkefni Bændasamtaka
Íslands, Landbúnaðarháskólans á
Hvanneyri, Landgræðslu ríkisins, Leiðbeiningarmiðstöðvar
Skagfirðinga og Hólaskóla. Fyrstu námskeiðin
voru haldin í V-Skaftafellssýslu og í Skagafirði.
Námskeiðunum er skipt í þrjá hluta. Fyrsti
hlutinn er eins dags námskeið þar sem m.a. er farið
yfir landlæsi, notkun loftmynda og vinnuferli við
gerð landnýtingaráætlunar. Þátttakendur
vinna því næst að fyrsta hluta áætlanagerðarinnar
heima, með aðstoð leiðbeinanda. Þriðji hlutinn
felur í sér annan námskeiðsdag, þar sem
farið er í beitarfræði, umhverfismál og þátttakendur
ljúka við gerð landnýtingaráætlunarinnar.
Miðvikudaginn 6. nóvember var seinni námskeiðsdagurinn
haldinn á Hólum. Þátttakendur á því
námskeiði hafa því farið í gengum vinnuferli
Betra bús og búið til áætlanir sem þeir
ætla að fara eftir og nýta sér til framtíðar.
Þátttakendur voru almennt ánægðir með
námskeiðið og vilja mæla með þeim fyrir
fleiri landeigendur.
HÞ
Lykillinn
Það
kemur oft fyrir að fólk í gistingu sendi til skólans
lykla sem það hefur gleymt að skila áður en það
hélt héðan. Annars konar lykill og talsvert merkilegri
barst skólanum fyrir stuttu. Honum fylgdu m.a. þessi orð:
Ég var í skólaferðalagi vorið 1969 þá
fjórtán ára. Komið var við á Hólum
og sagt frá staðháttum. Við fórum nokkrir
krakkar að gamla bænum (Nýjabæ) og mig minnir að
einhverjar lagfæringar stæðu þá yfir því
mér fannst vera nokkuð ruslalegt inn að líta. Þegar
við komum inn fyrir aðaldyrnar voru óþyljaðir
veggir svo bæði sá í torf og grjót. Af einhverri
ókunnri ástæðu þreifaði ég uppá
syllu eða þverband sem var á vinstri hönd þegar
inn var komið og varð þá lykillinn fyrir hendi minni.
Í stráksskap mínum stakk ég lyklinum á
mig. Ég veit ekki hvort ég var að ná mér
í minjagrip eða hvað mér gekk til en gerði mér
þó grein fyrir því að engin jarðnesk
verðmæti gætu verið í þessum lykli fólgin.
Frá Hólum var svo haldið heim á leið og
ég með lykilinn sem ég sagði engum frá. Ég
fann það strax eftir að heim kom að ég hafði
gert rangt og ætlaði mér að skila aftur lyklinum
góða en árin liðu eitt af öðru og hjá
mér beið lykillinn. Hann var mjög ryðgaður þegar
ég tók hann sem hann er nú og ég enga
tilraun gerði til þess að fægja hann eða laga til
á nokkurn hátt, ég bara geymdi hann. Þegar ég
sendi nú lykilinn tilbaka heim að Hólum reyni
ég að friða samvisku mína með því
að kannski var mér bara ætlað það hlutverk
að varðveita lykilinn fyrir endanlegri glötun.
Hólalykilinn góða sem mér hefur nú fylgt
í 33 ár kveð ég nú og vona að ég
sjái aftur í góðri varðveislu, þar sem
hann á með réttu heima.
H.J.
Ef einhver getur veitt frekari upplýsingar um lykilinn
væru þær vel þegnar. Okkur á Hólum
þótti vænt um þessa sendingu.
Beinagrindurnar
á verkstæðinu
Nokkrar heillegar hauskúpur sem fundust.
Bein ungra barna.
Rifbein, spjaldhryggur, herðablað og fleira.
 |
Þegar grafa átti
fyrir húsi í Keldudal í ágústlok brá
mönnum í brún: upp komu mannabein. Haft var samband
við minjavörð
Norðurlands vestra, Þór
Hjaltalín og tilkynnt um fundinn. Kom fljótlega í
ljós að þarna var heill kirkjugarður. Ákveðið
var að fara út í björgunaruppgröft og grafa
á því svæði þar sem húsið
á að rísa. Fornleifavernd ríkisins fjármagnar
þann gröft. Um kirkju eða kirkjugarð á þessum
slóðum er ekki getið í heimildum svo vitað sé.
Sérstök rannsókn verður þó gerð
á því í framhaldi af þessum fundi. Á
svæðinu sem var opnað reyndust vera 32 grafir þar af
8 grafir ungra barna (innan við 2ja ára). Allar snúa
grafirnar í austur-vestur. Álitið er að þetta
sé austurhluti kirkjugarðs og í hinum hlutanum kunni
að vera annað eins af gröfum. Þarna fannst einnig tóft
sem hugsanlega er kirkjutóft. Rannsókn á tóftinni
mun bíða enda er hún nokkru utan við hinn nýja
grunn. Allar grafirnar voru hins vegar teknar upp sem voru á svæðinu
sem opnað var. Beinin voru flutt til Hóla og verið er að
hreinsa þau og þurrka. Einnig fundust nokkrar kistuleifar og
kistunaglar. Með hjálp öskulaga mátti auðveldlega
sjá að a.m.k. ein gröfin sé síðan skömmu
fyrir 1104 er Hekla gaus. Ekkert bendir til að þessi tiltekna
gröf sé mikið eldri eða yngri en hinar. Nákvæmari
niðurstöður munu fást er beitt verður C14 aðferðinni
við aldursgreiningu beinanna. Það er áhugavert að
skoða beinin og sjá t.d. fallegar og óskemmdar tennur,
hversu sumir hafa verið stórir, hvað hauskúpum svipar
saman, þannig að auðvelt er að álykta að um
skyldleika sé að ræða.
Þau sem unnu að uppgreftrinum
í Keldudal voru sérfræðingarnir Ragnheiður
Traustadóttir, Þór Hjaltalín, Katrín
Gunnarsdóttir og Sigurður Bergsteinsson. Guðrún Lárusdóttir
og Þórarinn Leifsson sem búa í Keldudal unnu
með fornleifafræðingunum.
Þetta er mjög merkur
fundur og eru hugmyndir uppi um að fara í frekari rannsóknir
á staðnum í samstarfi Fornleifaverndar, Byggðasafnsins
og Hólarannsóknar.
|
Spánska
skrefið
Ein meginforsenda góðrar
kennslu í reiðmennsku við Hólaskóla er sú
að reiðkennararnir séu sífellt að prófa
sig áfram á sviði reiðmennsku.
Eyjólfur Ísólfsson
hefur verið óþreytandi í áratugi við
að kynna sér og prófa tamninga- og þjálfunaraðferðir
og margt af því sem hann áður var litinn hornauga
fyrir er talið sjálfsagt í dag.
Það nýjasta sem
Eyjólfur hefur verið að fást við er að kenna
hryssunni Rás frá Ragnheiðarstöðum hið svokallaða
„spánska skref“ en sú æfing felst í því
að knapinn fær hrossið til að sveifla framfótum
upp og fram á feti. Fótaburðurinn er mjög ýktur
og er æfingin fyrst og fremst sýningaratriði en er mjög
safnandi og eykur léttleika og einbeitingu.

Þrenna
frá Hólum hlýtur heiðursverðlaun
Þrenna frá Hólum,
dóttir Þráar frá Hólum, lék sama
leik og móðir hennar gerði á Landsmóti árið
2000 og varð efst heiðursverðlaunahryssna á Landsmótinu
2002. Í dómsorðum segir:
Afkvæmi Þrennu eru
stór. Höfuðið er gróft en frambyggingin er fádæma
glæsileg. Bakið er mjúkt og vöðvafyllt, lendin
djúp og öflug. Þau eru lofthá, sívöl
og sérlega hlutfallagóð. Fætur eru í meðallagi
en hófar frábærir. Prúðleiki á fax
og tagl er afar slakur. Afkvæmin eru flest alhliða, skrefmikil
og lyfta vel. Lundin er vakandi og næm og viljinn léttur.
Þrenna gefur stórglæsileg
gæðingshross, hún hlýtur heiðursverðlaun
fyrir afkvæmi og fyrsta sætið.
Eyjólfur
Ísólfsson yfirreiðkennari Hólaskóla sigrar
töltkeppni á Landsmóti
 |
Umsögn ritstjóra
Eiðfaxa:
Eyjólfur Ísólfsson
sýndi í forkeppni í tölti hverju nákvæm
og fagleg vinnubrögð yfir lengri tíma skila í þjálfun
hrossa. Sýning hans á hryssunni Rás frá Ragnheiðarstöðum
var einstaklega falleg, það blasti handbragð meistarans við.
Í fyrsta sinn í minni þess er þetta ritar klöppuðu
áhorfendur trekk í trekk á meðan hæga töltið
var riðið. Það var sannarlega hægt tölt með
dillandi mýkt; viljugt hross, frábært samspil. |
Konungleg heimsókn:
Anna Bretaprinsessa heimsækir
Hóla
Anna Bretaprinsessa á hestbaki frammi í Hjaltadal. Hún
ríður hestinum Töfra. Hennar helsti aðstoðarmaður
var Eyjólfur Ísólfsson yfirreiðkennari Hólaskóla
sem er einnig á myndinni. Eyjólfur er hér á
Þotu frá Hólum.
Margt merkismanna fór í reiðtúrinn með
Önnu prinsessu. Hér má sjá forseta Íslands,
Ólaf Ragnar Grímsson og heitmey hans Dorrit Moussaieff.
Fleiri myndir frá heimsókninni eru væntanlegar.
Brautskráning
tamningamanna og stúdents
Nemendur af öðru ári á hrossabraut
voru brautskráðir frá Hólaskóla laugardaginn
1. júní. 12 nemendur luku þessum áfanga. Þetta
er í fyrsta sinn sem nemendur útskrifast sem tamningamenn
eftir námskránni sem samþykkt var 2001. Á myndinni
eru frá vinstri: Eyjólfur Ísólfsson yfirreiðkennari,
Ólafur Magnússon, Sveinn Ingi Kjartanssson, Elín Magnúsdóttir,
Ragnheiður Þorvaldsdóttir, Heiðdís Arna Ingvarsdóttir,
Heimir Gunnarsson, Bertha Elise Kristiansen, Mie Hedebo Knudsen, Anne Soelberg,
Skúli Skúlason skólameistari og Víkingur Gunnarsson
deildarstjóri hrossabrautar. Á myndina vantar: Hinrik Þór
Sigurðsson, Reyni Atla Jónsson og Ævar Örn Guðjónsson.
Heimir Gunnarsson fékk viðurkenningar frá Hólaskóla
og Félagi tamningamanna fyrir bestan námsárangur.
Brynhildur Ingibjörg Oddsdóttir nemandi á
hrossabraut útskrifaðist sem stúdent frá Hólaskóla
þennan dag.
Hreinsunardagurinn
tókst vel
Röskt fólk kembdi Hólastað af
rusli síðdegis þann 29. maí. Blíðviðri
var og nutu allir sín í ruslaleitinni. Sumir leyfðu listrænum
hæfileikum að njóta sín. Eftir eins og hálfstíma
barning við ruslið var kveikt í kolunum og fólk lagði
á grillið góðgæti úr ísskápnum
heima. Ekki fór hjá því að sumar inniverurnar
tækju lit.
Elín Berglind ruslatæknifræðingur við ruslalistaverkin!
- Óli fylgist með.
Ruslahaugurinn - listaverkin þó ekki með.
Fjölbreytt fæða í svanga gogga!
Gaman - saman!
Brautskráning
hestafræðinga og leiðbeinenda
21 nemandi var útskrifaður af hrossabraut
11. maí.
Þetta voru hestafræðingar og
leiðbeinendur sem nú hafa lokið eins árs námi
við skólann.
Þau sem útskrifuðust voru:
Agnar Snorri Stefánsson
Aníta Margrét Aradóttir
Auður Ástvaldsdóttir
Bergþóra Sigtryggsdóttir
Brynjar Atli Kristinsson
Ellen Celine Holstad
Friðrik Már Sigurðsson
Helle Laks
Hildur Hartmannsdóttir
Ida Haugen
Jónína Á Vignisdóttir
Kristján Ljótsson
Mille Kyhl
Nadia Agertoug Nielsen
Nadine Semmler
Rahel Emmenegger
Rikke Scmöllhammer Wolff
Sigríður Þorsteinsdóttir
Sunna Birna Helgadóttir
Tanja Maria Hansen
Þórdís Sigurðardóttir
Fern verðlaun voru veitt. Hitaveita Hjaltadals
veitti Friðrik Má Sigurðssyni viðurkenningu fyrir
hæstu einkunn í áfanganum Kennslufræði og
reiðkennsla, Agnar Snorri Stefánsson fékk viðurkenningu
fyrir góðan árangur í áföngum í
reiðmennsku frá Hrossaræktarsambandi Skagafjarðar.
Friðrik Már Sigurðsson og Rahel Emmenegger voru með
hæstu aðaleinkunn og fékk Friðrik viðurkenningu
frá Bændasamtökum Íslands og Rahel frá
Hólaskóla.
Við brautskráninguna héldu Guðni
Ágústsson landbúnaðarráðherra, Ingimar
Ingimarsson formaður Hrossaræktarsambands Skagafjarðar, Ari
Teitsson formaður Bændasamtaka Íslands, Ólafur
Hafsteinn Einarsson formaður Félags tamningamanna, Helle Laks
fulltrúi nemenda auk Skúla Skúlasonar skólameistarara
ræður og ávörp. Víkingur Gunnarsson brautskráði
nemendur. Jóhann Már Jóhannsson söng nokkur lög
við undirleik Rögnvaldar Vilbergssonar.
Að athöfn lokinni var nýútskrifuðum
og gestum boðið til kaffisamsætis. Einnig var opnuð sýning
í tilefni af 120 ára afmæli skólans og viljayfirlýsing
á milli Hólaskóla og Sveitarfélagsins Skagafjarðar
var undirrituð.
Viljayfirlýsing
um samstarf Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Hólaskóla
Fulltrúar Sveitarfélagsins
og Hólaskóla undirrita viljayfirlýsinguna. Standandi
eru Elín Líndal formaður skólanefndar Hólaskóla
og Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra.
Við borðið sitja Skúli Skúlason skólameistari,
Snorri Styrkársson formaður Byggðaráðs og Stefán
Guðmundsson sveitarstjórnarmaður fulltrúi Herdísar
Sæmundardóttur forseta sveitarstjórnar.
Sveitarfélagið Skagafjörður
og Hólaskóli sameinast um að efla Hóla í
Hjaltadal annars vegar sem þekkingarsetur og miðstöð
háskólamenntunnar í héraðinu og hins vegar
sem einn af byggðakjörnum svæðisins. Þetta verði
gert með eftirfarandi hætti:
1) Efla enn frekar tengsl starfseminnar á
Hólastað við stofnanir sveitarfélagsins og fyrirtæki
á svæðinu. Unnið verði sameiginlega að því
að beina verkefnum er varða menntun, rannsóknir og þróunarstörf
til Hóla, eftir því sem við á, sem og að
stuðla að fjármögnun slíkra verkefna.
2) Stofna sameiginlegan vinnuhóp sem geri
tillögur um fyrirkomulag þjónustu og framkvæmda
er lúta að rekstri byggðarinnar að Hólum. Markmið
þessa er að Hólaskóli og Sveitafélagið
Skagafjörður vinni saman að frekari þróun skipulags
fyrir staðinn, húsnæðismálum, gatnagerð,
veitumálum og allri almennri þjónustu við íbúa
og starfsemi staðarins.
3) Árið 2002 verði sérstök
áhersla lögð á þróun umhverfismála
á Hólum í samræmi við Staðardagskrá
21 og stefnu Sveitarfélagsins Skagafjarðar í þessum
málaflokki. Lagt er til að sveitarfélagið og Hólaskóli
sameini krafta sína við eflingu umhverfismála í
Skagafirði.
Athugið
Mötuneytið
í sumar
Helsta breytingin er sú
að ákveðið hefur verið að fella niður hefðbundið
síðdegiskaffi á virkum dögum. Eftir sem áður
verðum við með kaffi á könnunni og hægt verður
að kaupa sérstaklega ýmsar kökur, samlokur ofl.
Einnig verður kaffi á kaffistofu eins og venjulega.
Á kvöldin verður
mötuneytið sem slíkt aðeins starfrækt fyrir þá
sem eru í föstu fæði en aðrir starfsmenn geta
þó að sjálfsögðu keypt mat og munu þeir
fá 25% afslátt af uppsettu verði hverju sinni. Hægt
er að láta skrifa það hjá sér og taka
af launum eins og aðrar máltíðir.
Opnunartími, frá 1.
júní til 31. ágúst nk. verður:
| Morgunverður |
8-10
|
| Hádegisverður |
12-14
|
| Kaffi |
15-16.30
|
| Kvöldverður |
18.30-20.30
|
Grillið verður svo opið
alla daga frá 11 - 21.
Gæðaátak
í hestatengdri ferðaþjónustu
Síðastliðið
sumar hófst rannsóknar- og þróunarverkefni á
gæðum í hestatengdri ferðaþjónustu á
Íslandi, á vegum Hestamiðstöðvar Íslands,
SAF og Hólaskóla.
Markmiðið er að rannsaka væntingar og
upplifun viðskiptavina í hestatengdri ferðaþjónustu
og vinna svo úr þeim upplýsingum fræðsluefni
fyrir rekstraraðila í slíkri þjónustu. Margt
fróðlegt hefur þegar komið í ljós við
vinnslu þessa verkefnis, og voru niðurstöður úr
viðtölum við rekstraraðila kynntar á ráðstefnunni
Hálft
er líf á hestbaki í febrúar s.l. hér
á Hólum.
Gerðir voru tvennskonar spurningarlistar til að
leggja fyrir gesti, annars vegar fyrir þá sem fóru
í stutta hestaleigu og hinsvegar fyrir fólk í hestaferð.
Ferðafólk tók vel í að svara spurningarlistunum.
Listarnir eru á 5 tungumálum (íslensku, ensku, þýsku,
frönsku, og norsku), eru mjög vel upp settir og auðveldir
í notkun. Því fleiri svör sem berast því
marktækari eru svona kannanir, því er mjög æskilegt
að fá enn fleiri þátttakendur í þetta
verkefni.
Nú hefur verið ákveðið að
bjóða öllum þeim sem taka þátt í
verkefninu á námskeið í haust þar sem farið
verður yfir öryggis- og rekstrarþætti í hestaferðaþjónustu
auk þess sem þátttakendur fá handbók með
þeim upplýsingum sem nauðsynlegt er að hafa við
höndina í slíkri ferðaþjónustu.
Þeir sem eru að reka hestatengda ferðaþjónustu
og hafa áhuga á að taka þátt í þessu
verkefni eru vinsamlega beðnir um að hafa samband sem fyrst. Verkefnisstjóri
er Guðrún Helgadóttir hjá Hólaskóla
og starfsmaður verkefnisins í sumar verður Margrét
Björk, nemandi á ferðamálabraut Hólaskóla.
Sími Margrétar er 863 5160 en netfangið er: hestamaggy@torg.is
Íþróttir
> Sundlaugin
er opin þriðjudaga og fimmtudaga kl. 18-21 og laugardaga kl.
13-16.
>
Bændaglíman kl. 20.30 mánudaga og fimmtudaga
>
HREYFING (hlaup, ganga eða hjólreiðar og teygjur á
eftir) þriðjudaga og fimmtudaga kl. 17.30 og laugardaga kl. 11
Nokkrar eldri
fréttir
Rannsókna- og háskólanet
Íslands (RHnet) var stofnað í janúar sl. Tilgangurinn
er að tengja íslenska háskóla og rannsóknastofnanir
saman um háhraða tölvunet og annast þjónustu
á sviði tölvusamskipta, hvort sem er innanlands eða
á alþjóðavettvangi. Meðal stofnenda er Hólaskóli.
RHnet og Lína.Net hf gerðu
með sér samstarfssamning um uppbyggingu ljósleiðarakerfis
fyrir stofnanirnar á Íslandi. Um er að ræða
tímamótasamning hjá Rannsókna- og háskólaneti
Íslands, en innan nokkurra vikna verða flestar háskóla-
og rannsóknastofnanir tengdar með ljósleiðara. Nánari
upplýsingar um RHnet má
finna á vefsíðum þess.
Úrslit
í Skeifukeppninni 1. maí 2002
4-gangur:
Forkeppni
Aðaleikunn
Aníta 8,65
Agnar 8,35
Nadía 7,85
Sigríður 7,75
Rikke 7,55
Mille 7,55
Ida 7,55
Helle 7,45
Þórdís 7,35
Friðrik 7,15
Úrslit:
1 Aníta M Aradóttir
2 Agnar Snorri Stefánsson
3 Nadía Nielsen
4 Þórdís Sigurðardóttir (kom upp úr
B-úrslitum)
5 Rikke Wolff
6 Sigríður Þorsteinssdóttir
7 Ida Haugen
7 Mille Kyhl
9 Helle Laks
10 Friðrik Már Sigurðsson
Myndin er fengin að láni á Eiðfaxavefnum.
EIÐFAXABIKARINN,
-FYRIR BEST HIRTA HESTINN,
-KOSNING NEMENDA OG STARFSMANNA
Sunna Birna Helgadóttir
-Fulltrúi Eiðfaxa, Anna Guðrún Grétarsdóttir,
afhenti gripinn
FT-ÁSETUVERÐLAUN:
-SÁ NEMANDI SEM HLÝTUR HÆSTA EINKUNN FYRIR ÁSETU
OG STJÓRNUN Í
GANGTEGUNDAPRÓFINU
Aníta Margrét Aradóttir með 8.70
-Fulltrúi FT, Elvar Einarsson, afhenti gripinn
MORGUNBLAÐSSKEIFAN:
SÁ NEMANDI SEM HLOTIÐ HEFUR HÆSTU EINKUNN FYRIR REIÐMENNSKU
I-III Á
SKÓLAÁRINU. Í ÞVÍ ERU 7 VERKLEG OG
2 BÓKLEG PRÓF.
1 Agnar Snorri Stefánsson 8,66
2 Auður Ástvaldsdóttir 8,45
3 Ida Haugen 8,34
Námskeiðið
Betra Bú
Fyrri hluti tveggja daga námskeiðs sem ber
nafnið Betra Bú var haldið á Hólum 16. apríl.
Seinni hlutinn verður næsta haust. Þetta námskeið
er samstarfsverkefni Bændasamtaka Íslands, Landbúnaðarháskólans
á Hvanneyri, Landgræðslu ríkisins, Leiðbeiningarmiðstöðvar
Skagfirðinga og Hólaskóla. Fyrirlesarar voru Ragnhildur
Sigurðardóttir, Guðrún Schmidt, og Bjarni Maronsson.
Námskeiðið felur í sér að
landnotendum er leiðbeint við að gera sjálfir landnýtingaráætlun
fyrir jarðir sínar, eftir eigin hugmyndum og markmiðum.
Unnið er eftir vinnuferli sem Landgræðsla ríkisins
og nokkrir bændur hafa þróað undanfarin ár.
Námskeiðið er kjörinn vettvangur fyrir
alla landnotendur sem vilja gera markvissa landnýtingaráætlun,
s.s. bæta landkosti og beitarnýtingu vegna gæðastýringar
í sauðfjárrækt og hrossarækt eða endurskoða
landnotkun m.t.t. skógræktar, uppgræðslu, beitar
o.fl. Áætlunin getur jafnframt verið liður í
alhliða búrekstraráætlun.
Námskeiðið tókst í alla staði
vel og voru þátttakendur á námskeiðinu 10
bændur. Auk þess sátu námskeiðið ráðunautur
Leiðbeiningarmiðstöðvar Skagfirðinga, fræðslufulltrúi
Landgræðslu ríkisins og fulltrúi Héraðsseturs
Landgræðslunnar á Vesturlandi.
Dæturnar með í
vinnuna
Í
dag, 26. mars, stendur Auður í krafti kvenna fyrir Dæturnar
með í vinnuna deginum. Hann gengur út á það
að foreldrar fara með dæturnar sínar með í
vinnuna og kynna fyrir þeim starfið sitt. Hugmyndin á
bak við þetta er að stelpur kynnist störfunum sem best
því það eru jú þær sem eiga eftir
að vera 50 prósent af vinnuafli þjóðarinnar.
Strákarnir fá ekki að koma með,
vegna þess að það þykir sjálfsagt að
þeir fari út að vinna frekar en við stelpurnar, svo
það er ekki nein sérstök ástæða
til þess að kynna fyrir þeim þann kost að fara
út að vinna.
Mörg fyrirtæki eru með sérstaka
dagskrá fyrir dæturnar sem koma með í vinnuna,
t.d. Opin Kerfi, þar fá stelpurnar að setja saman tölvur
o.s.frv. Ég fékk hinsvegar ekkert verkefni annað en að
skrifa um hvernig þessi dagur er. Mamma kynnti auk þess fyrir
mér hvað hún gerir og svo var ég í tölvunni
hennar á meðan hún tók til á skrifstofunni
sinni.
Það voru ekki margar stelpur sem mættu
með foreldrunum í vinnuna í dag fyrir utan mig, enda
er komið páskafrí í skólanum. En Auður
Guðmundsdóttir kom og fór í Skólalax með
pabba sínum og Sigríður Vaka kom með pabba sínum.
Kannski hafa komið fleiri en ég hef bara ekki tekið eftir
þeim.
Mér finnst þetta mjög sniðug hugmynd
og hlakka til að gera þetta á næsta ári?.
Jóhanna Thorarensen
Á myndinni eru Jóhanna á skrifstofu móður
sinnar, Auður sem leit inn, en Sigríður Vaka var farin heim
þegar myndin var tekin. Kannski þurfti hún að fá
lúrinn sinn!
Landbúnaðarháskólinn
á Hvanneyri og Hólaskóli:
Samstarf við University of Manitoba
Þriðjudaginn 19. mars 2002, skrifuðu forráðamenn
Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri og Hólaskóla
undir samstarfssamninga við University of Manitoba í Kanada.
Samningar skólanna er að því leyti óvenjulegir
að þeir er bæði stúdenta- og starfsmannasamningar
og í þeim er meðal annars kveðið á um að
nemendur íslensku skólanna tveggja geti dvalið 1-2 annir
ytra án þess að borga skólagjöld.
Fulltrúar skólanna þriggja sem skrifuðu
undir samningana eru þeir Harold Bjarnason deildarforseti landbúnaðardeildar
University of Manitoba, Skúli Skúlason skólameistari
Hólaskóla og Magnús B. Jónsson rektor
Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri.
Þessir samningar á milli skólanna
munu stórauka samstarf þeirra á háskólasviði.
Þar er kveðið á um árleg skipti á nemendum,
kennurum og bókum sem gefnar eru út af háskólaútgáfum
skólanna þriggja, auk þess sem fræðimönnum
er veitt gagnkvæm starfsaðstaða til rannsókna. Einnig
er í samningunum kveðið á um samstarfsráðstefnur
sem halda skal á 18 mánaða fresti. Þær verða
í skólunum til skiptis, eða á þriggja ári
fresti á hvorum stað og eiga sér í lagi að
auðvelda gagnkvæman skilning á fræðasamfélagi
skólanna og hvetja til samstarfs milli þeirra.
Þessir samningar Hólaskóla, LBH og
University of Manitoba eru gerðir í framhaldi af samstarfssamningi
sem Háskóli Íslands og Manitobaháskóli
gerðu með sér í nóvember 1999.
Fyrsta ráðstefnan í framhaldi af því var
haldin við Manitobaháskóla í október
árið 2000, undir yfirskriftinni Building a New Relationship.
Þá bauð Manitobaháskóli 10 íslenskum
fræðimönnum til ráðstefnuhalds og var megináherslan
á íslenska arfleifð. Meðal kanadískra fyrirlesara
var heiðursgestur geimfarinn Bjarni Tryggvason. Fyrir nokkrum
dögum var ráðstefnan í fyrsta sinn haldin hér
á landi, þverfagleg samstarfsráðstefna með
Manitobaháskóla undir yfirskriftinni Northern Countries
– Norðlæg lönd.
Skýrsla nefndar um ferðaþjónustu
bænda komin út
Nefnd sem landbúnaðarráðherra skipaði
og hafði það hlutverk að kanna hvernig styrkja mætti
ferðaþjónustu bænda og efla tengsl hennar við
samtök og stofnanir landbúnaðarins, leggur m.a. til að
ráðuneytið hafi forystu um stefnumótun fyrir ferðaþjónustu
bænda og að komið verði á fót embætti
rannsókna- og gæðastjóra ferðaþjónustu
bænda. Þá leggur nefndin til að Lánasjóður
landbúnaðarins komi í auknum mæli að lánveitingum
til uppbyggingar ferðaþjónustunnar til að efla rekstrarumhverfi
hennar og auka og efla þurfi þróunarverkefni tengd ferðaþjónustu
bænda. Er lagt til að komið verði á fót
miðlægum bókunargrunni fyrir ferðaþjónustubændur
á Netinu. Í nefndinni sátu Guðrún Þóra
Gunnarsdóttir, Níels Árni Lund, Hrafnkell Karlsson
og Sævar Skaptason
Guðrún
meðal Finna
Í síðustu viku
var Guðrún Helgadóttir í Finnlandi, nánar
tiltekið við Mustiala, bændaskóla sem nú er
hluti af Hame Polytechnic. Hún var að halda fyrirlestra á
námskeiði um ferðaþjónustu í dreifbýli
og eitt af því sem þátttakendum fannst frábært
að kynnast af Íslandi er það þegar vefstjórinn
á Hólum lítur út um gluggann !
Lítum á skjáinn
til þeirra: http://www.mustiala.hamk.fi/
, þar er ensk útgáfa líka. Auk þess að
kenna um ferðaþjónustu í dreifbýli eins
og við er þessi skóli með hrossabraut og á
vefsíðunni undir Articles er einmitt grein um hesta og hestamennsku
í Finnlandi.
Styrktarsjóður stofnaður
fyrir rannsóknir háskólastúdenta
Frétt frá Morgunblaðinu 21.1.2002:
Stofnaður hefur verið styrktarsjóðurinn
Þekking
stúdenta í þágu þjóðar
sem mun veita stúdentum við Háskóla Íslands
fimm milljónir króna í styrki til að vinna að
rannsóknum víðs vegar um landið, að því
er segir í fréttatilkynningu frá Stúdentaráði.
Ráðið kom sjóðnum á fót í
samstarfi við tíu sveitarfélög og Byggðastofnun.
Boðað hefur verið til blaðamannafundar
þar sem greint verður frá samningum Stúdentaráðs
við sveitarfélögin tíu. Í fréttatilkynningunni
segir að stúdentar hafi aldrei áður hlotið jafnmikla
hvatningu til að vinna að rannsóknum á landsbyggðinni.
Loks segir að með framtakinu vilji Stúdentaráð
legga sitt af mörkum til þess að Háskóla Íslands
sé kleift að „sinna hlutverki sínu sem þjóðskóli
er stuðli að sköpun þekkingar á landinu öllu".
Spádómur völvu
Ekkert
er völvunni (hjá Séð og heyrt) óviðkomandi.
Hvort sem það er ofan jarðar eða neðan. Hún
minnist á uppgröft á Hólum í Hjaltadal.
"Þar mun margt skemmtilegt koma í ljós. Ég sé
fyrir mér helgimynd, kross. Ákveðna skýringu á
kristindómnum, biskupsstólnum og öðru því
sem okkur hefur þótt sjálfsagt um aldir. Þarna
er um að ræða fund á merkilegu trúarlegu tákni."
(Séð og heyrt nr.1 - 2002)
Brautskráning
Þann 12. maí 2001 brautskráði
Hólaskóli 21 nemanda; hestafræðinga og leiðbeinendur,
en það er ný námsgráða skólans,
sem nemendur fá eftir vertrarlangt nám í hestafræðum
á Hólum. Auk hestafræðinga og leiðbeinenda
brautskráðust 3 nemendur sem voru í verknámi sl.
vetur sem búfræðingar og tamningamenn.
Hæstu meðaleinkunn fékk
danska stúlkan Anne Soelberg og fékk hún verðlaun
frá Hrossaræktarsambandi Skagfirðinga, einnig hlaut Hinrik
Þór Sigurðsson viðurkenningu fyrir hæstu einkunn
á leiðbeinendaprófi.
Við athöfnina fluttu ávörp
þeir Bolli Gústavsson víglsubiskup, Ingimar Ingimarsson
formaður Hrossaræktarsambands Skagfirðinga og Ólafur
Hafsteinn Einarsson formaður Félags tamningamanna auk Skúla
Skúlasonar skólameistara. Jóhann Már Jóhannsson
söng við undirleik Rögnvaldar Valbergssonar.
Eftirtaldir nemendur brautskráðust:
Hestafræðingar og leiðbeinendur
Alfreð Sigurður Kristinsson Reykjavík
Anne Soelberg Danmörku
Berglind Sigurðardóttir Gunnarsstöðum
Bertha Elise Kristiansen Noregi
Brynhildur Ingibjörg Oddsdóttir Reykjavík
Elín Magnúsdóttir Oddgeirshólum
IV
Gróa Sturludóttir Reykjavík
Guðmundur Birgir Kiernan Akureyri
Heiðdís Arna Ingvarsdóttir
Hólmavík
Heimir Gunnarsson Akureyri
Hinrik Þór Sigurðsson Hafnarfirði
Iðunn Silja Svansdóttir Dalsmynni
Jakob Lárusson Bessastaðahreppi
Jóhanna Heiða Friðriksdóttir
Varmalæk
Mie Hedebo Knudsen Danmörku
Ólafur Magnússon Sveinsstöðum
Ragnheiður Þorvaldsdóttir Hvítárholti
Reynir Atli Jónsson Þórshöfn
Sigríður Sesselia Sóldal Hólum,
Helgafellssveit
Sólrún Þóra Þórarinsdóttir
Sauðárkróki
Sveinn Ingi Kjartansson Akureyri
Ævar Örn Guðjónsson Hvolsvelli
Búfræðingar
Bryndís Kristjánsdóttir
Borgaholti, Biskupstungum
Milena Saveria van den Heerik Hollandi
Vibeke Nather Danmörku
Brautskráðir nemendur
Hólaskóla 12. maí 2001 ásamt Víkingi
Gunnarssyni deildarstjóra hrossabrautar og Skúla Skúlasyni
skólameistara.
Á myndinni eru frá vinstri: Víkingur
Gunnarsson, Anne Soelberg, Milena Saveria van den Heerik, Bryndís
Kristjánsdóttir, Vibeke Nather, Mie Hedebo Knudsen, Bertha
Elise Kristiansen, Guðmundur Birgir Kiernan, Reynir Atli Jónsson,
Alfreð Sigurður Kristinsson, Berglind Sigurðardóttir,
Jakob Lárusson, Sigríður Sesselia Sóldal, Sveinn
Ingi Kjartansson, Ólafur Magnússon, Brynhildur Ingibjörg
Oddsdóttir, Iðunn Silja Svansdóttir, Ragnheiður Þorvaldsdóttir,
Jóhanna Heiða Friðriksdóttir, Gróa Sturludóttir,
Sólrún Þóra Þórarinsdóttir,
Elín Magnúsdóttir, Heiðdís Arna Ingvarsdóttir
og Skúli Skúlason. Á myndina vantar þá
Hinrik Þór Sigurðsson og Ævar Örn Guðjónsson
Frá
Skeifudeginum
sem haldinn var hátíðlegur 1. maí 2001
Hugmyndin
um Ísland - námskeið á vegum ferðamálabrautar
haldið á Hólum.
|