Vettvangsskólinn á Hólum
Frá árinu 2003 hefur verið starfræktur vettvangsskóli á Hólum í Hjaltadal á vegum Hólarannsóknarinnar, í samstarfi við Háskóla Íslands og Háskólans á Hólum. Fyrstu 2 árin var námskeiðið eingöngu fyrir íslenska nemendur en frá árinu 2005 hefur einnig verið boðið uppá námskeið fyrir erlenda nemendur í samstarfi við Háskólann í Osló.
Námskeiðin fara fram á sumrin og standa yfir í 4 vikur í senn. Kennt er alla virka daga í formi fyrirlestra og starfsþjálfunar. Vettvangsskóli þessi samsvarar 5 eininga háskólanámi í fornleifafræði við sagnfræðiskor Háskóla Íslands og sambærilegt við Háskólan í Osló.
Námskeiðið felst í ítarlegri kynningu á starfsháttum fornleifafræðinga, aðferðum við fornleifauppgröft á Íslandi, söfnun og úrvinnslu rannsóknargagna, forvörslu og skráningu menningarminja.
Takmarkið með kennslunni er að miðla til nemenda þekkingu á sem flestum sviðum fornleifarannsóknar og gefa þeim kost á að spreyta sig á ýmsum þáttum hennar, s.s. teikningu, uppmælingu, skráningu og ljósmyndun, töku sýna og úrvinnslu gagna á vettvangi og frágangi þeirra. Þeir fá einnig eftir atvikum að reyna sig við heimildasöfnun vegna skráningar fornleifa, skráningu og skýrslugerð.
Á Hólum er öll aðstaða til fyrirmyndar, nemendur gista í nýbyggðum stúdentaíbúðum sem eru m.a útbúnar með eldhúsi, þvottaherbergi og internettengingu. Morgun-, hádegis og kvöldmat er á hótelinu og þar er einnig sundlaug.




