- Um rannsóknina
-
- Fréttir og viðburðir
-
- Útgáfa og heimildir
-
- Vettvangsskóli
-
- Aðrar rannsóknir
-
- Starfsfólk
-
- Samstarfsaðilar
-
- Tenglar
-
- Leikir og skemmtun
-
Forsíða |
Nytjar í nöfnum
Örnefni í nágrenni Hóla í Hjaltadal. Rit Hólarannsóknarinnar
Rúna K. Tetzschner.
Út er komin fræðibók eftir Rúnu K. Tetzschner: Nytjar í nöfnum. Örnefni í nágrenni Hóla í Hjaltadal. Tvíræður titillinn vísar í senn til þeirra nytja sem hafa má af örnefnum sem heimildum um horfna tíma og til þess að þau nöfn sem fjallað er um vitna um landnytjar Hjaltdælinga, Skagfirðinga og Íslendinga á fyrri öldum. Fjallað er um örnefni í nágrenni Hóla: Kálfsstaði, Nautabú, Geitagerði, Kollugerði, Traðarhól og Bygghól og farið út í víðtækan samanburð við hliðstæð nöfn um allt land. Örnefnafræðin er ung og vaxandi fræðigrein á Íslandi og örnefnalýsingar eru mikilvægar heimildir margra annarra fræðigreina, þ.á.m. fornleifafræði. Rúna leitar fanga í margvíslegum heimildum fyrri alda og birtir rannsókn hennar heildræna mynd af brotakenndu efni sem ekki hefur fyrr verið dregið saman í einn stað. Verulegur fengur er að þessari bók.
Nytjar í nöfnum er fyrsta ritið í ritröð Hólarannsóknarinnar og gefin út í samstarfi við Örnefnastofnun Íslands (sem 1. sept. varð hluti af Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum). Menningarsjóður styrkti útgáfu bókarinnar og höfundur hlaut starfsstyrk frá Hagþenki, félagi höfunda fræðirita og kennslugagna.
Rúna K. Tetzschner, er með B.A.-próf í íslensku og fjölþætta starfsreynslu. Hún hefur verið sérfræðingur á Þjóðminjasafni Íslands og starfað þar við margvísleg verkefni síðustu átta ár, m.a. fornleifarannsóknir. Rúna er auk þess í alþjóðlegum hópi sérfræðinga Hólarannsóknarinnar og hefur einnig unnið fyrir Örnefnastofnun Íslands. Að hinni umfangsmiklu fornleifarannsókn á Hólum í Hjaltadal standa Háskólinn á Hólum, Byggðasafn Skagfirðinga og Þjóðminjasafn Íslands. Hólarannsóknin grundvallast á þverfaglegum aðferðum þar sem ein vísindagrein menningarsögulegra rannsókna speglar sig í annarri og sérfræðingar hennar koma úr ýmsum fræðigreinum.
Í Nytjum í nöfnum, fyrsta riti Hólarannsóknarinnar, nær Rúna að sameina þekkingu sína og reynslu í örnefnafræðinni, grein sem ásamt mörgum öðrum er ætlað að skýra byggðaþróunina í Hjaltadal.
Ekki verður annað sagt en Rúna sé fjölhæf því auk margs konar fræðastarfa er hún listakona og útgefandi. Hún hefur á undanförnum árum fléttað störfum sínum á Þjóðminjasafninu saman við sjálfstæða listastarfsemi undir nafni fyrirtækis síns, Lítilla ljósa á jörð. Hún hefur stýrt og staðið fyrir listviðburðum og áður hafa komið út eftir hana þrjár ljóðabækur, fjöldi myndskreyttra ljóðakorta og skáldsaga fyrir börn, Ófétabörnin.
Nýlega tók Rúna við stöðu kynningarstjóra Þjóðminjasafns Íslands og helgar sig nú skemmtilegu og krefjandi starfi við að kynna og miðla menningararfi Íslendinga.
|


|