- Um rannsóknina
-
- Fréttir og viðburðir
-
- Útgáfa og heimildir
-
- Vettvangsskóli
-
- Aðrar rannsóknir
-
- Starfsfólk
-
- Samstarfsaðilar
-
- Tenglar
-
- Leikir og skemmtun
-
Forsíða |
Úttektir
Í þeim tilgangi að heimildavinna fyrir fornleifarannsóknina á Hólum í Hjaltadal geti gagnast öðrum í hvers konar vísindalegri starfsemi hefur verið ákveðið að birta vinnugögn rannsóknarinnar á Netinu, en þó með þeim fyrirvara að textarnir geta í sumu verið frábrugðnir frumgögnunum, svo sem nánar greinir að neðan.
Úttektir á Hólastað frá 17. og 18. öld eru geymdar í handritum á Þjóðskjalasafni Íslands. Fyrir fornleifarannsóknina á Hólum í Hjaltadal var unnið að söfnun og skráningu þessara heimilda í júní, sbr. heimildaskrá. Handritin sem eru gömul og snjáð þola ekki ljósritun en Þjóðskjalasafnið brást vel við umleitan Hólarannsóknarinnar og gekk til samstarfs um innskönnun. Létu starfsmenn safnsins myndatöku Hólaúttekta hafa forgang í vor en til að flýta fyrir var ákveðið að láta grófa innskönnun nægja. En skerpa til lestrar og innsláttar er þó góð
Teknar voru myndir af öllum úttektum Biskupsskjalasafnsins frá 17. öld og fyrri hluta 18. aldar. Þar eð annað efni viðkomandi handrita snerti líka Hóla fékk það að fylgja með. Vegna lítils fyrirvara var beðið með innskönnun efnis frá seinni hluta 18. aldar en starfsmaður Hólarannsóknarinnar sló inn vel flestum húsaúttektum þess tíma, alls um 150 blaðsíður. Tvær úttektir, árin 1770 og 1774 eru í handritinu Bps. B, VIII, 20 en hinar fimmtán í handritinu Bps. B, VIII, 18 sem nær yfir tímabilið 1756-1792.
Heimildir: Um mannvirki á Hólum og staðinn
- Árni G. Eylands: Gvendarbrunnur á Hólum:Bágar fregnir um hann. Mbl. 19. júlí 1974.
- Árni G. Eylands: Ein af hugmyndum Hólanefndar. Mbl. 7. júlí 1978.
- Ásgeir Jónsson: Múrinn rauði á Hólum. 2001.
- Biskupasögur Jóns prófasts Halldórssonar II. Rvk. 1911-15. Úr Æfisögu Árna biskups Þórarinssonar, eftir Halldór konrektor Hjálmarsson, prentuð í Leirárgörðum árið 1800. (Um hús bls. 228-9.)
- Bændaskólinn á Hólum 1882-1982. Afmælisrit. Sölvi Sveinsson annaðist útgáfuna. Bændaskólinn á Hólum 1982.
- Ásmundur Jónsson frá Skúfsstöðum: Hólar í Hjaltadal.
- Brynleifur Tobiasson: Heim að Hólum. Skagfirzk fræði IV-V. Rvk. 1943.
- Freysteinn Jóhannsson: Þar fara hefðin og sagan saman. Mbl. 24. mars 2002. Bls. 25
- Gísli Sigurðsson: Söguslóð á Hólum í Hjaltadal. Lesb. Mbl. 15. jan. 1994. Bls. 4-6.
- Guðbrandur Jónsson: Dómkirkjur á Hólum.
- Gunnlaugur Björnsson: Hólar í Hjaltadal. Rvk. 1937.
- Gunnlaugur Björnsson: Hólastaður. Bændaskólinn 75 ára. 1957.
- Hannes Pétursson: Rauðamyrkur. Söguþáttur. Rvk. 1973.
- Hólar í Hjaltadal. Söguslóð. Umsjón með texta: Jón Gauti Jónsson. Hólar í Hjaltadal 1989.
- Hólaskóli eflir dreifbýlið. Viðtal við Skúla Skúlason, skólameistara á Hólum. Freyr 10/2001. Bls. 4-9.
- Hólaskóli. Gamall og nýr. 1. tbl. 1. árg. júní 2002. (Blað gefið út í tilefni af 120 ára afmæli Hólaskóla).
- Jóhann Þorsteinsson: ,Hólar í Hjaltadal. Tímarit hins íslenzka bókmenntafélags. VII, árg. 1886. Rvk. 1886. Bls. 67-105.
- Kristján Eldjárn: Um Hólakirkju. Leiðsögn um kirkju og kirkjugripi. Rvk. 1950.
- Kristján Eldjárn og Þorsteinn Gunnarsson: Um Hóladómkirkju. Rvk. 1993.
- Ólafur Ásgeirsson: Hólastóll. Rekstur og efnahagur 1374-1594. Óprentuð námsritgerð 1976.
- Pétur Bjarnason: Biskupsstóll og bændaskóli. Hof 1991.
- Sigurður Bergsteinsson: Fornleifarannsóknir á Hólastað - möguleikar og leiðir. Útdráttur úr erindi sem var flutt að Hólum 5. nóvember 2000. http://www.holar.is
- Sigurjón Páll Ísaksson: Minningartafla Ingibjargar Benediktsdóttur í dómkirkjunni á Hólum. Skagfirðingabók. Rit Sögufélags Skagfirðinga. 20. Rvk. 1991. Bls. 191-204.
- Sigurjón Páll Ísaksson: Um legsteina í Hóladómkirkju. Skagfirðingabók. Rit Sögufélags Skagfirðinga. 21. Rvk. 1992. Bls. 61-139.
- Sigurjón Páll Ísaksson: ,,Auðun biskup rauði og timburstofan á Hólum. Auðunarstofa. Samantekt heimilda (vinnueintak). Línuhönnun verkfræðistofa 1998.
- Endurrit úr heimildum. Auðunarstofa. Samantekt heimilda (vinnueintak). Línuhönnun verkfræðistofa 1998. (Óprentaðar úttektir á Auðunarstofu.)
- Sigurjón Páll Ísaksson: ,,Um kirkjubækur Hóladómkirkju. Skagfirðingabók. Rit Sögufélags Skagfirðinga. 18. Rvk. 1989. Bls. 185-9.
- Vefslóð Hóla í Hjaltadal: http://www.holar.is/starfs.htm
- Þór Hjaltalín: Hólastaður í einkaeign. Heimildir um byggingar á Hólum 1801-1882. Glaumbær 21. ág. 2001. Óprentuð samantekt.
|


|