Hólar í Hjaltadal voru höfuðstaður Norðurlands um aldir,biskupsstóll og fræðasetur. Staðurinn geymir íjörðu miklar upplýsingar um sögu kirkju og þjóðar, en í fornfræðilegu tilliti hefur hann að miklu leyti verið óplægður akur fram að þessu. Hólarannsóknin er þverfagleg vísindarannsókn undir stjórn Ragnheiðar Traustadóttur fornleifafræðings. Að rannsókninni koma innlendir og erlendir sérfræðingar úr flestum greinummenningarsögulegra rannsókna.

|