Um rannsóknina
Fréttir og viðburðir
Útgáfa og heimildir
Vettvangsskóli
Aðrar rannsóknir
Starfsfólk
Samstarfsaðilar
Tenglar
Leikir og skemmtun
Forsíða

Markmið

  1. Ráðast í löngu tímabæra fornleifafræðilega og sagnfræðilega rannsókn á Hólastað.
  2. Leggja grunn að þverfaglegum rannsóknum á Hólum og þar með efla starfsgrundvöll íslenskrar fornleifafræði til frambúðar með þjálfun stúdenta, fræðimanna, samvinnu innlendra og erlendra vísindamanna, útgáfu og kynningum.
  3. Styrkja starf ferðamálabrautar og menningartengda ferðaþjónustu á Hólum á fræðilegum grundvelli, til þess að vekja almenning til vitundar um íslenska menningarsögu.
  4. Kanna efnahag biskupanna/biskupsstólsins.
  5. Kanna skipulag þorpsins, þ.e. húsaþyrpingar eða þéttbýliskjarna sem er að finna á Hólum.
  6. Kanna húsagerð en vafalaust gefst hvergi betra tækifæri til að grafa upp jafnmargar mismunandi tegundir húsa á einum stað.
  7. Rannsaka lífshætti íslenskra yfirstétta á mismunandi tímum og félagslega samsetningu.
  8. Kanna sambandið við aðra staði tengda Hólum, s.s. við Hof, Kolkuós, Þingeyri, Reynistað o.fl.

Aðferðir

  1. Hólarannsóknin er þverfagleg. Að henni koma sérfræðingar frá flestum sviðum menningarsögulegra rannsókna á landinu. Unnið var að undirbúningi árið 2001, athugað hvar mannvirki hefðu staðið og hvort seinni tíma framkvæmdir á Hólum hefðu raskað minjum. Loftmyndir og túnakort af Hólum ásamt fornleifaskráningu Katrínar Gunnarsdóttur voru notuð til að átta sig á hvernig Hólar voru áður en öll ný mannvirki voru reist. Komu að miklu gagni túnakort nemenda Bændaskólans frá árunum 1910 til 1920. Verða þau mikilvæg við gerð kortagrunns, því að ráðgert er að gera nákvæmt kort af fornleifum á Hólum í mælikvarðanum 1:400 og ítarlega fornleifaskrá, ekki aðeins á Hólastað, heldur einnig á jörðunum Hjaltadal, Nautabúi, Kálfasstöðum, Sauðaseli, Geitagerði, Kollugerði. Jafnframt verða gerð yfirlitskort fornleifa á þessum jörðum.
  2. Verður forgangsverkefni að rannsaka allar úttektir og aðrar heimildir sem geta gefið hugmyndir um fjölda, gerð og stærð fornra mannvirkja á Hólum. Í framhaldi af því verður reynt að endurskapa Hólastað á hinum mismunandi tímum með tölvuteikningum.
  3. Gróðurkort og nytjakort verða hluti af rannsókninni. Hjalti Þórðarson, landfræðingur, hefur unnið að gerð gróðurkorts af Hólum eins og þeir eru í dag. Það kort verður notað sem grunnur og frá því reynt að rekja breytingar á umhverfinu aftur í tíma.

 

 

Norfa

Hólarannsóknin fer fram á vegum Hólaskóla, Byggðasafns Skagfirðinga og Þjóðminjasafns Íslands.
Hún fer fram fyrir tilstyrk Kristnihátíðarsjóðs.