Endurmenntunarstjóri við Hólaskóla er Sólrún Harðardóttir. Snúið ykkur til hennar varðandi spurningar um námskeið. 

Hér birtast námskeið um leið og þau komast á dagskrá: 
 
Léttum okkur róðurinn Norður-Þingeyjarsýsla 19.-20. mars
Gæði í ferðaþjónustu Hólar, Hveragerði 19. mars - 29. mars
Umhverfistúlkun Hólar 23.-24. mars
Staðir og fólk Reykjanes, Austurland, Vestfirðir mars - apríl 
Í öruggum höndum Hvanneyri 6. apríl 
Það eru að koma gestir Egilsstaðir 19. apríl
GREEN GLOBE 21 vottunarferlið - fyrirtæki Hólar 16. apríl
GREEN GLOBE 21 vottun samfélaga Hólar 20. apríl
Verum góð við grænmetisætur! Hólar 24.-25. apríl
Skógur og ferðaþjónusta Hólar apríllok
Gönguleiðir og göngustígagerð Hólar 12.-15. maí
Námskeið fyrir „staðarverði“ Hólar maí
Tröllaskagi – paradís ferðamannsins Hólar sumar
Leirlist (námskeið í samvinnu við handverksfélagið Fléttuna) Reykjahóll í Fljótum helgar í mars
Hrosshár (námskeið í samvinnu við handverksfélagið Fléttuna) Hólar 17.-18. apríl
Reiðlist með Reyni - einkakennsla Hólar 24.2.-16.3.-13.4.
Járningar fyrir lengra komna Hólar 6.-7. mars
Bygging hesta og reiðmennska Hólar 3.-4. apríl
Íslenski hesturinn, saga og menning Hólar apríl / maí
Gæðaátak á hrossaræktarbúum eftir samkomulagi eftir samkomulagi
Reiðmennska og þjálfun  Hólar vormisseri
Tamningar Hólar vor og haust
Bleikjueldi Sauðárkrókur 14. maí

Námskeið ársins 2003. Við erum til viðræðu um að endurtaka námskeið sem þegar hafa verið haldin ef áhugi og næg þátttaka er í sjónmáli. Hafið samband!



Léttum okkur róðurinn
Námskeið fyrir konur og karla sem reka ferðaþjónustu og önnur þjónustufyrirtæki, eða eru komin með fastmótaða hugmynd að stofnun slíks fyrirtækis.

Dagar og staðir: Þórshöfn 19.-20. mars 
Tími : 13-19 og 9-16  (16 kennslustundir)
Umsjón :  Elín Antonsdóttir markaðsfræðingur og Laufey Haraldsdóttir kennari í  ferðamáladeild Hólaskóla
Lýsing : Námskeiðið er að hluta til byggt á námsefni sem varð til í Evrópusambandsverkefninu “Routes”, en það var samstarfsverkefni fjögurra landa, Eistlands, Íslands, Skotlands og Írlands. Þátttökuhópar að hálfu Íslands voru þrír, í Skagafirði, á Snæfellsnesi og í Borgarfirði. Verkefninu lauk í lok árs 2003 og er áhugi fyrir því að nýta þá þekkingu og reynslu sem varð til við vinnu þess.
Á námskeiðinu verður farið í þætti eins og stofnun fyrirtækja, kostnaðarútreikninga, fjárstreymi, starfsmannahald, markaðsetningu, þjónustugæði. o.fl.   Þá verður leitast við að svara spurningum eins og hvar frumkvöðlar/stofnendur fyrirtækja geti leitað aðstoðar og upplýsinga. 
Þátttökugjald: 15000 kr (styrkhæfir 7000 kr *)

Gæði í ferðaþjónustu
Service Quality in Tourism Operations
Dagur: 19. mars - 29. mars
Staður: Hólaskóli, Hólum í Hjaltadal, Garðyrkjuskólinn að Reykjum
Tími: 9.30-15.30 (8 kennslustundir)
Umsjón: Iain P. Murray prófessor í Háskólanum í Guelph og gestaprófessor við Hólaskóla
Lýsing: This in-service will focus on understanding and servicing your customers with the goals of creating and retaining satisfied customers and generating positive word-of-mouth promotion of your business.  Iain will offer practical ideas and suggestions aimed specifically at smaller business.  Topics will include: attributes that contribute to customer value; staying current with changing customer wants; customer relationship management; and collecting and using customer feedback (developing a practical customer questionnaire).  As a group, we will discuss world standards for service, new and innovative tourism products, WEB and Internet usage for your business, ideas for growth, and the way tourism is organized in Iceland versus other models.

Fjallað verður um hvernig má gera gesti ánægða og skapa gott orðspor. Helstu kenningar og aðferðafræði í gæðamálum verða kenndar. Rætt verður um alþjóðlegar viðmiðanir í þjónustu, nýsköpun og eflingu í atvinnugreininni, notkun Netsins og komið verður inn á sérkenni íslensks túrisma. Kennt verður á ensku. 
Þátttökugjald: 8000 (styrkhæfir 4000 kr *)

Umhverfistúlkun
Skipulag fræðslu um náttúru, lífríki og sérstöðu svæða 
Dagar: 23.-24. mars
Staður: Hólaskóli, Hólum í Hjaltadal
Tími: kl. 9-16 (16 kennslustundir)
Umsjón: Sigþrúður Stella Jóhannsdóttir þjóðgarðsvörður 
Lýsing: Umhverfistúlkun túlkar sameiginlegan þjóðararf, náttúru og menningu. Hún varpar ljósi á merkingu og sérstöðu umhverfis og gerir um leið dvöl gesta á svæðinu ánægjulega og eftirminnilega. Umhverfistúlkun getur verið í formi gönguferða, náttúru- og sögustíga, bæklinga, skilta og fleira. Á námskeiðinu verður fjallað um mismunandi leiðir í umhverfistúlkun, markmið hennar og hugmyndafræði. Ýmis praktísk atriði verða tekin fyrir. Námskeiðið er blanda af fyrirlestrum og verklegum æfingum. 
Þátttökugjald: 15000 kr (styrkhæfir 7000 kr *)

Staðir og fólk!
Dagar: mars-apríl 
Staðsetning: Reykjanes, Austurland, Vestfirðir og eftir samkomulagi
Tími: kl. 10-18 (10 kennslustundir)
Umsjón: Guðrún Helgadóttir kennari við Hólaskóla og Rögnvaldur Guðmundsson hjá Rannsóknum og ráðgjöf ferðaþjónustunnar.
Lýsing: Námskeiðið er ætlað starfsfólki sveitarfélaga, starfsfólki í ferðaþjónustu og þjónustustörfum almennt og áhugafólki um ferðamál, menningu og ímynd byggðarlaga.
Ferðafólk heimsækir ekki bara fyrirtæki í ferðaþjónustu heldur er það að heimsækja heilt byggðarlag. Þannig eru allir íbúar í raun gestgjafar og allt samfélagið áfangastaður ferðafólks. Ferðaþjónusta og ímynd staða er því nátengd og það er  mikilvægt fyrir sjálfbæra ferðaþjónustu að vera í sátt við sjálfsmynd íbúa. Námskeiðið fjallar um hvernig hægt er að kynna menningarverðmæti í nánasta umhverfi og sinna þannig bæði betur þörf gesta fyrir að kynnast staðháttum og menningu og þörf íbúa fyrir skýra og jákvæða ímynd staðarins. Auk fyrirlestra og umræðu um námsefnið, er gert ráð fyrir að þátttakendur séu virkir sem einstaklingar og í hópum við að vinna úr hugmyndum sem fram koma.
Þátttökugjald: 10000 kr (styrkhæfir 5000 kr *)

Í öruggum höndum 
- námskeið um öryggismál í ferðaþjónustu 
Dagur: 6. apríl 
Staður: Hvanneyri
Tími: kl. 10-16 (8 kennslustundir)
Umsjón: Christiane Mainka kennari við Hólaskóla
Lýsing: Það er nauðsyn fyrir alla sem starfa við ferðaþjónustu að vera vel með á nótunum hvað varðar öryggismál; forvarnir, viðbrögð í neyðartilfellum og ábyrgð starfsfólks og fyrirtækis. Nú stendur fyrir dyrum samþykkt nýrrar reglugerðar sem kemur öllum við sem vinna í ferðaþjónustu. Mikilvægt er að kynna sér málin. 
· Pétur Rafnsson hjá Ferðamálaráði kynnir hina væntanlegu reglugerð og fjallar um afþreyingu í ferðaþjónustu. Markmið reglugerðar þessarar er að auka öryggi og gæði og eftirlit með fyrirtækjum í afþreyingu í ferðaþjónustu með því að koma á ákveðnara skipulagi hvað varðar leyfisveitingar. Með afþreyingu í ferðaþjónustu er átt við þátttöku almennings í útivist, áhættu, skemmtun, menningu og/eða fræðslu. 
· Guðný Björnsdóttir lögfræðingur hjá Sjóvá-Almennum fjallar um ábyrgð þeirra sem veita ferðaþjónustu og ráðleggur um tryggingar í tengslum við starfsemina. Hún mun styðja mál sitt með raunverulegum dæmum. 
· Að síðustu mun Pétur Aðalsteinsson halda erindi. Hann hefur starfað mikið að ferðaþjónustu á undanförnum árum, auk þess sem hann starfaði hjá Slysavarnafélagi Landsbjargar. Pétur mun í fyrsta lagi fjalla um áhættumat í rekstri ferðaþjónustufyrirtækja, þ.e. nauðsyn þess að greina þá mögulegu áhættu sem ógnað getur starfseminni. Í öðru lagi fjallar hann um leiðir fyrir hvern og einn til þess að draga úr áhættunni og í þriðja lagi hvernig bregðast megi við því ef áföll verða.
Þátttökugjald: 8000 kr (4000 kr styrkhæfir *)

Það eru að koma gestir
Dagur: 19. apríl
Staður: Egilsstaðir 
Tími: kl. 9-15 (8 kennslustundir)
Umsjón: Ingibjörg Sigurðardóttir kennari við Hólaskóla 
Lýsing: Markmið námskeiðsins er að auka þekkingu og færni þátttakenda í nýtingu matar og matarmenningar í ferðaþjónustu og þar með að gera fólk hæfara til að mæta mismunandi væntingum og kröfum viðskiptavina. Fjallað verður um mótttöku gesta, framreiðslu, þjónustu og viðmót, skreytingar og hvernig lagt er á borð. Fjallað verður um hlaðborð, skipulag, uppsetningu og hagkvæmni þeirra. Einnig verða matarhefðir teknar fyrir, neysluvenjur ólíkra þjóða og væntingar mismunandi hópa gesta. Rætt verður um hvernig íslensk matarmenning birtist í ferðaþjónustu og hin vannýttu tækifæri í þeim efnum. Auk þessa verður fjallað um hollustu, gæði og öryggi matvæla, fæðuofnæmi/fæðuóþol og aukefni. Komið verður inn á hugtökin lífrænt ræktuð matvæli og erfðabreytt matvæli. Rætt verður um mikilvægi þess að þjálfa sumarstarfsmenn og helstu leiðir til þess. Kynning og fræðsla verður um kaffi og eiginleika þess og vínsmökkun verður einnig á dagskrá.
Þátttökugjald: 8800 kr (4400 kr styrkhæfir *

GREEN GLOBE 21 vottunarferlið - fyrirtæki
Dagur: 16. apríl 
Staður: Hólaskóli, Hólum í Hjaltadal 
Tími: kl. 10-17 (8 kennslustundir)
Umsjón: Elín Berglind Viktorsdóttir kennari við Hólaskóla og gæðastjóri hjá Ferðaþjónustu bænda. 
Lýsing: Markmið námskeiðsins er að ferðaþjónustuaðilar öðlist þekkingu á umhverfis- og vottunarsamtökunum Green Globe 21 og geti að námskeiði loknu tekist á við það ferli sem krafist er til að fá umhverfisvottun Green Globe 21. Á námskeiðinu verður fjallað um upphaf, þróun og starfsemi Green Globe 21.  Þá verður farið yfir Green Globe 21 ferlið og þær skuldbindingar sem fyrirtæki tekur á sig við inngöngu í samtökin þ.e. að koma upp virku umhverfisstjórnunarkerfi og starfa samkvæmt staðardagskrá 21. Námskeiðið er gagnlegt öllum þeim sem vilja vinna á markvissan hátt á umhverfismálum í fyrirtækjum. Námskeiðið verður í formi fyrirlestra, umræðna og einstaklingsvinnu.
Þátttökugjald: 8000 kr (4000 kr styrkhæfir *

GREEN GLOBE 21 vottun samfélaga
Dagur: 20. apríl 
Staður: Hólaskóli, Hólum í Hjaltadal
Tími: kl. 10-17 (8 kennslustundir)
Umsjón: Stefán Gíslason umhverfisstjórnunarfræðingur, UMÍS hf – Environice
Lýsing:
Markhópur: Sveitarstjórnarmenn og starfsmenn sveitarfélaga og landshlutasamtaka, ferðamálafulltrúar og forsvarsmenn í ferðaþjónustu
Markmið: Þátttakendur öðlist þekkingu á umhverfis- og vottunarsamtökunum Green Globe 21, staðli Green Globe 21 fyrir samfélög og þeim ávinningi sem fylgir vottun, og færni til að leiða starf heimamanna í vottunarferlinu.
Lýsing: Á námskeiðinu verður farið yfir upphaf, þróun og starfsemi Green Globe 21.  Þá verður farið yfir Green Globe 21 ferlið fyrir samfélög, tengsl þessa ferlis við Staðardagskrá 21 og þær skuldbindingar sem samfélag tekur á sig við aðild að samtökunum. Stuðst verður við fengna reynslu sveitarfélaga á Snæfellsnesi
Kennsluform:  Námskeiðið verður í formi fyrirlestra, umræðna og hópvinnu
Þátttökugjald: 9000 kr (styrkhæfir 4500 kr *)

Verum góð við grænmetisætur! 
Dagar: 24.-25. apríl
Staður: Hólaskóli, Hólum í Hjaltadal
Tími: laugardag kl. 15-21 og sunnudag kl. 9-15 (18 kennslustundir)
Umsjón: Sólveig Eiríksdóttir hjá Grænum kosti 
Lýsing: Meðal ferðamanna er stór hópur fólks sem ekki borðar kjöt og jafnvel ekki fisk. Hvað er hægt að gefa þessu fólki gott að borða? Solla á veitingastaðnum Grænum kosti er hafsjór hugmynda. Hagnýtt námskeið fyrir alla í veitingarekstri og einnig hina sem elda bara heima og vilja læra að útbúa fjölbreytta grænmetisrétti. 
Þátttökugjald: 15000 kr + efniskostnaður (styrkhæfir 6000 * + efniskostnaður)

Skógur og ferðaþjónusta
Dagar: apríllok
Staður: Hólar í Hjaltadal
Tími: kl. 10-17 (8 kennslustundir)
Umsjón: Einar Gunnarsson skógfræðingur 
Lýsing: kemur síðar
Þátttökugjald: kemur einnig síðar

Gönguleiðir og göngustígagerð 
Dagar: 12.-15. maí 
Staður: Hólar í Hjaltadal 
Tími: 9-18 (48 kennslustundir)
Umsjón: Bjarni Kristófer Kristjánsson kennari við Hólaskóla 
Lýsing: Markmið námskeiðsins er að kynna þátttakendur fyrir uppbyggingu og viðhaldi gönguleiða og stíga. Farið verður í leiðarval á gönguleiðum og stikanir, viðgerðir á illa förnum göngustígum, tröppugerð, viðbrögð við vandamálum tengdum vatni og leysingum, pallagerð o.fl. Námskeiðið er sambland af fyrirlestrum og verklegri þátttöku. Námskeiðið er skipulagt í samvinnu við bresk sjálfboðaliðasamtök (BTCV). 
Þátttökugjald: 30000 kr (styrkhæfir 15000 kr) 
Gisting og fæði allan tímann: 10000 kr

Námskeið fyrir „staðarverði“
Dagar: maí
Staður: Hólar í Hjaltadal
Umsjón: Guðrún Þóra Gunnarsdóttir deildarstjóri við Hólaskóla
Lýsing: Um er að ræða nýtt námsefni fyrir starfsmenn á söfnum, sögu-, minja- og kirkjustöðum. Námskeiðið er á vegum Hólaskóla í samvinnu við Þjóðminjasafn, Fornleifavernd ríkisins, Húsafriðunarnefnd og Byggðasafns Skagfirðinga.
Þátttökugjald: 28000 kr
Uppihald: Gisting í tveggja manna herbergi og fæði í einn sólarhring á Hólum fyrir þátttakendur er 3650 kr. 
Nánara fyrirkomulag. 

Gerum það gott í sumar! 
Dagar: júní 
Staðir: eftir samkomulagi 
Tími: kl. 10-16 (8 kennslustundir)
Umsjón: Elín Antonsdóttir kennari við Hólaskóla
Lýsing: Markmið námskeiðsins er að auka færni sumarstarfsfólks í daglegum störfum sínum með kynningu á lykilatriðum ferðaþjónustunnar miðað við aðstæður á svæðinu. Fjallað er um hugtök og heiti í greininni, hvaðan ferðamenn koma og eftir hverju þeir eru að sækjast. Góð þjónusta er skilgreind og rætt um leiðir til að veita gæðaþjónustu. Framkoma, ímynd og samskipti er annar meginþáttur, farið er yfir vandamál og viðbrögð við þeim. Síðast en ekki síst er ferðaþjónustan á svæðinu og aðdráttarafl þess fyrir ferðamenn kynnt.  Kennslutilhögun: fyrirlestrar, umræður og æfingar. 

Tröllaskagi – paradís ferðamannsins
Nánara fyrirkomulag auglýst síðar. 

Námskeið í samvinnu við Fléttuna, handverksfélag í austanverðum Skagafirði: 

Leirlist I
Dagar: 6.-7. mars og 20.-21. mars
Staður: Reykjahóll í Skagafirði
Tími: kl. 10-17 (32 kennslustundir)
Umsjón: Sonja Hafsteinsdóttir 
Lýsing: Kennd verða undirstöðuatriði um handmótun í leir. 
Þátttökugjald: nánar síðar

Leirlist II
Dagar: 13.-14. mars og 27.-28. mars
Staður: Reykjahóll í Skagafirði
Tími: kl. 10-17 (32 kennslustundir)
Umsjón: Sonja Hafsteinsdóttir 
Lýsing: Kennd verða undirstöðuatriði um handmótun í leir. 
Þátttökugjald: nánar síðar

Hrosshár
Dagar: 17.-18. apríl
Staður: Hólaskóli, Hólum í Hjaltadal
Tími: kl. 10-17 (18 kennslustundir)
Umsjón: Lene Zachariassen 
Lýsing: Á námskeiðinu verður taglhár notað í hnútavinnu. Kennt verður að undirbúa hárin og snúa saman í lengjur sem síðan eru notaðar í hnýtingu. Gerð verða einföld mynstur.
Þátttökugjald: 13000 kr (íbúar á lögbýlum fá styrk úr Framleiðnisjóði og greiða því 5000 kr)



Reiðlist með Reyni - einkakennsla
Dagar: 24. febrúar, 16. mars og 13. apríl
Staður: Hólaskóli
Tími: kl. 19-23
Umsjón: Reynir Aðalsteinsson reiðmeistari
Lýsing : Um er að ræða einkakennslu þar sem unnið er út frá hverjum hesti og knapa fyrir sig. Námskeiðið er þriggja kvölda og verður þátttakendum úthlutuð heimavinna á milli skipta. Hólaskóli og FT-norður standa að námskeiðinu. Félagsmenn FT hafa forgang í námskeiðið. Fjöldi þátttakenda er takmarkaður. 
Þátttökugjald : 12000 kr 

Járningar fyrir lengra komna
Dagar: 6.-7. mars
Staður: Hólaskóli 
Tími : kl. 10–17 og 10-16
Umsjón: Sigurður Sæmundsson járningameistari
Lýsing: Á námskeiðinu verður meðal annars farið í smiðjuvinnu, járningar keppnis- og sýningarhrossa, jafnvægisjárningar og nýjungar í krönsum og viðgerðarefnum. Um er að ræða verklega og bóklega kennslu. Seinni dag námskeiðsins geta þátttakendur unnið með eigin hross. Hólaskóli og FT-norður standa að námskeiðinu. Félagsmenn FT hafa forgang í námskeiðið. Fjöldi þátttakenda er takmarkaður. 
Þátttökugjald: 18000 kr (9000 kr styrkhæfir *)

Bygging hesta og reiðmennska
Dagar: 3.-4. apríl 
Staður: Hólaskóli, Hólum í Hjaltadal
Umsjón: Dr. Deb Bennett 
Takmarkaður fjöldi þátttakenda. 
Nánara fyrirkomulag verður kynnt síðar.

Íslenski hesturinn, saga og menning
Dagar: apríl / maí 
Staður: Hólaskóli, Hólum í Hjaltadal
Umsjón: Björn Kristjánsson forstöðumaður Söguseturs íslenska hestsins
Lýsing: Fjallað er um íslenska hestinn út frá sögulegu og menningarlegu sjónarhorni. Námskeiðið er byggt upp sem 6 sjálfstæðir fyrirlestrar sem í sameiningu er ætlað að veita innsýn í menningartengda þætti hestamennskunnar. Meðal efnis sem tekið er fyrir: Uppruni og sérkenni íslenska hestsins; hesturinn í menningu þjóðveldisaldar; þróun reiðtygja og reiðfatnaðar; hesturinn með augum skáldanna; gangtegundir íslenska hestsins og saga þeirra; saga hrossaræktar og reiðmennsku á Íslandi; íslenski hesturinn með augum erlendra ferðalanga.
Þátttökugjald: 

Gæðaátak á hrossaræktarbúum

Um er að ræða átaksverkefni í samvinnu við Hestamiðstöð Íslands þar sem tekið er á öllum helstu þáttum í rekstri hrossabús. Þessir þættir eru m.a.: kynbætur hrossa, fóðrun, heilbrigði, landnýting, tamningar, markaðsmál, rekstur og gerð áætlana. 

Verkefnið, sem tekur um eitt ár, samanstendur af fimm námskeiðum (samtals 66 kennslustundir) sem fylgt er eftir með úttektum heima á bæjunum. Eftir það tekur við mat á árangri, uppfærsla markmiða og áætlana einu sinni á ári auk persónulegrar ráðgjafar. Boðið er upp á verkefnið í heild í samvinnu við stofnanir, félög eða einstaklinga.

Rekstrargreining og áætlanagerð
Unnin er rekstrargreining, byggð á bókhaldsgögnum búsins. Sé um fjölþættan rekstur að ræða er hrossaræktin greind frá öðrum rekstrarþáttum. Á grundvelli rekstrargreiningar og þeirra markmiða sem sett eru fram í öðrum þáttum verkefnisins er gerð rekstraráætlun til nokkurra ára. Áætlunin er endurskoðuð og uppfærð árlega. 

Námskeiðin fimm eru eftirfarandi: 

Kynbætur hrossa
Kynnt verða grundvallarhugtök kynbóta og kynbótastarfs s.s. erfðir og umhverfi, arfgengi, úrval og erfðaframför. Fjallað verður almennt ræktunarstarf í hrossarækt, ræktunarmarkmið, kynbótadótma og kynbótamat (BLUP). Þátttakendur fá leiðsögn í notkun tölvuforritsins Veraldarfengs. 

Fóðrun og heilbrigði 
Kennt verður um fóðurþarfir hrossa, helstu fóðurtegundir og næringarefni. Fjallað verður um fóðurefnagreiningar, fóðuráætlanir, fóðrunarskipulag og aðstöðu. Einnig verður fjallað um ormalyf og ormaveiki. Sérstök áhersla er lögð á unghross í uppvexti. Gerðar verðar verklegar æfingar í mati á holdafari. Þá verður fjallað um þann þátt gæðastýringar í hrossarækt sem snýr að heilbrigði. 

Landnýting
Fjallað verður um mat á hrosshögum, landnýtingu og landlæsi, beitarskipulag og leiðir til að bæta land. Sá hluti gæðastýringar í hrossarækt sem snýr að landnýtingu er kynntur fyrri þátttakendum. Fjallað verður um framhaldsþjálfun, gangtegundir, markmið þjálfunar og þjálfunaraðferðir. Byggt er að verulegu leyti á sýnikennslu. 

Tamningar og þjálfun 
Á námskeiðinu er lögð megináhersla á frumtamningar. Kennt verður um atferli hrossa, frumtamningu, frumtamningaraðferðir og hugmyndafræði frumtamningar. Fjallað verður um framhaldsþjálfun, gangtegundir, markmið þjálfunar og þjálfunaraðferðir. Byggt er að verulegu leyti á sýnikennslu. 

Sala og markaður reiðhrossa
Farið verður yfir sögu útflutnings á hrossum frá Íslandi og staðan í dag metin. Helstu markaðir verða skoðaðir og lögð áhersla á nýja markaði s.s. Bandaríkin. Farið verður yfir útflutningsferlið og þá pappíra sem því fylgja, rætt um markaðssetningu hrossa og hrossabúa og hvernig bændur geta sjálfir komið sér á framfæri. Samkeppnisaðstaða og sérstaða íslenskra hrossabænda rædd. Gerð verður grein fyrir atriðum í undirbúningi, tamningu og þjálfun hestsins, sem máli skipta í hestasölu. 

Umsjón: Víkingur Gunnarsson deildarstjóri hrossaræktardeildar Hólaskóla. 

Reiðmennska og þjálfun
Námskeiðið er fyrirhugað á vormisseri og  er ætlað starfandi tamningamönnum. 
Nánar auglýst síðar. 

Tamningar
Námskeiðið er fyrirhugað á haustmisseri og vormisseri og  er ætlað starfandi tamningamönnum. 
Nánar auglýst síðar. 

Bleikjueldi
Dagur: 14. maí
Staður: Sauðárkrókur
Tími: 9-17
Lýsing: Fjallað verður um núverandi stöðu í bleikjueldi. Farið verður í allan eldisferilinn frá hrognatöku, um seiða- og matfiskeldi, slátrun og vinnslu. Einnig verður fjallað um vatnstöku og meðhöndlun vatns, helstu sjúkdóma og nokkrar rekstrarlegar forsendur.
Umsjón: Ólafur Sigurgeirsson
Þátttökugjald: 10.000 kr (5000 kr styrkhæfir)*

* Framleiðnisjóður landbúnaðarins styrkir íbúa og starfsmenn lögbýla til þátttöku á námskeiðum sem menntastofnanir landbúnaðarins skipuleggja, þ.e. Hólaskóli, Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri og Garðyrkjuskóli ríkisins. 


| Starfsemi og starfsfólk| Brautir | Símenntun | Hólastaður | Tilkynningar | Tenglar|