








|
Hjaltadalur
gengur til suðausturs inn í hinn mikla fjallgarð, sem
liggur milli Skagafjarðar og Eyjafjarðar og er oft nefndur Tröllaskagi.
Dalurinn er um 30 km að lengd, umlukinn 1000 -1200 m háum
fjöllum með skörðum og þverdölum. Smájöklar
eru víða í dalbotninum. Dalurinn er fremur veðursæll
og vel gróinn. Bærinn Hólar er nálægt
miðjum Hjaltadal að austan. Hann stendur í hólaþyrpingu,
sem er framhlaup úr Hólabyrðu, einu tígulegasta
og hæsta fjallinu á þessum slóðum (1244
m.y.s.).
Frá Hólum eru 32 km til Sauðárkróks,
stærsta þéttbýlis í Skagafirði.
Milli Hóla og Reykjavíkur eru 379 km og 133 km milli Akureyrar
og Hóla. Skagafjörður er landbúnaðarhérað,
frægt fyrir hrossarækt og hestamennsku. Jafnframt er þar
stundaður fjölbreyttur landbúnaður, iðnaður
og sjávarútvegur, auk margs konar þjónustu.
|