| Stærðfræði í list Eschers
M.C. Escher var þekktur listamaður sem notaði þökun í verkum sínum. Hann var eins konar mósaíklistamaður, en hver flís var meðhöndluð og staðsett með hjálp stærðfræðinnar. Til eru bækur um það hvernig hann notfærði sér rúmfræði í listsköpun sinni. Hann gerði steinprentaðar myndir (litógrafík), skar út og teiknaði. Hér eru skoðaðar nokkrar leiðir sem Escher fór. Grunnform í þökuninni eru marghyrningar. Hlið í marghyrningnum er breytt og breytingarnar eru svo fluttar á aðra hlið marghyrningsins. Hið nýja form er síðan notað til að þekja.
Myndir á þessum síðum eru eftir Ephraim Fithian. Textinn er sömuleiðis byggður á hans texta. Sólrún Harðardóttir snéri. |