BA í stjórnun ferðaþjónustu og móttöku gesta

Um er að ræða þriggja ára nám, samtals 180 ECTS einingar. 
Markmið BA- náms í stjórnun ferðaþjónustu og móttöku gesta er að mennta fólk til forystu í íslenskri ferðaþjónustu. Námið er sérsniðið að íslenskri ferðaþjónustu og með sterka tengingu við fyrirtæki og stofnanir í greininni.
Nemendur fá bóklegan grunn og verklega þjálfun á meðan á náminu stendur og öðlast þannig góða innsýn inn í fjölbreyttar hliðar gestamóttöku í hinum ýmsu greinum ferðaþjónustunnar. Náminu lýkur með 12 ECTS eininga lokaverkefni þar sem nemendur hafa val um að skrifa BA lokaverkefni eða taka BA verknám.
Áhersla er lögð á að þjálfa leiðtoga- og stjórnunarhæfni einstaklingsins. Lögð er áhersla á samfélagslega ábyrgð og hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar í ferðaþjónustu.
Námið er undirbúningur fyrir framhaldsnám s.s. í gestamóttöku og ferðamálafræðum. 

Þú getur skoðað skipulag námsins í Uglu, kennsluvef háskólans.