MA í ferðamálafræði

Í náminu getur nemandinn sérhæft sig á því sviði ferðamála sem hann hefur áhuga á, s.s. viðburðastjórnun, móttöku gesta, þróun áfangastaða, menningu/menningararfi, náttúru, sjálfbærni, afþreyingu eða útivist.

Með náminu dýpkar nemandinn þekkingu sína með lestri og umræðu um lykilverk nýjustu rannsókna og rannsóknaraðferðum. Námið er undirbúningur fyrir störf sem felast í stefnumótun, skipulagningu, stjórnun og rekstri í ferðaþjónustu og stjórnun viðburða, eða störf að rannsóknum, þróun og eftirliti með ferðamálum. Einnig veitir námið undirbúning fyrir doktorsnám.

Námið er 120 ECTS eininga nám, þar af 60 eininga rannsóknarverkefni. Inntökuskilyrði eru BA/BS próf í ferðamálafræði eða nám sem metið er sambærilegt. Námið er fjarnám með staðbundnum lotum sem hægt er að taka sem fullt nám eða hlutanám.

Nemendur sækja um nám á grundvelli tillögu sinnar að rannsóknarverkefni á sviði ferðamála. Áhugasömum er bent á að hafa samband við Ingibjörgu Sigurðardóttur, deildarstjóra ferðamáladeildar eða kennsluskrifstofu Háskólans á Hólum.

 

Þú getur skoðað skipulag námsins í Uglu, kennsluvef háskólans.