BA í ferðamálafræði

Markmið BA náms í ferðamálafræði er að mennta fólk sem tekur virkan þátt í þróun ferðaþjónustu, getur haft frumkvæði að stofnun ferðaþjónustufyrirtækja og gegnt stjórnunarstörfum á þessu sviði.
Lögð er áhersla á að hafa hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar að leiðarljósi við uppbyggingu íslenskrar ferðaþjónustu.
Nemendur geta valið um að ljúka námi með BA ritgerð, BA verknámi eða völdum námskeiðum.
Námið veitir landvarðarréttindi í samstarfi við Umhverfisstofnun og býr nemendur undir að veita ferðamönnum leiðsögn. Námið er jafnframt undirbúningur fyrir rannsóknatengt framhaldsnám í ferðamálafræðum. 

Námið er fjarnám með staðbundnum lotum sem hægt er að taka sem fullt nám eða hlutanám. Það spannar að jafnaði 3 ár - 180 ECTS einingar.

Þú getur skoðað skipulag námsins í Uglu, kennsluvef háskólans.