Karfan er tóm.
- Háskólinn
- Háskólinn á Hólum
- Miðlæg stjórnsýsla
- Háskólasvæðið
- Stefnur og starfsreglur
- Þjónusta
- Starfsfólk
- Inspera
- Nám
- Ferðamáladeild
- Fiskeldis- og fiskalíffræðideild
- Hestafræðideild
- Hagnýtar upplýsingar
- Rannsóknir
- Vefverslun
Markmið diplómanáms í viðburðastjórnun er að nemendur verði færari í að skipuleggja, fjármagna og stýra viðburðum, frá upphafi til enda. Áhersla er á samþættingu hagnýtra og fræðilegra þátta viðburðastjórnunar. Byggt er á hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar auk þess sem áhersla er lögð á að kynna það sem nýjast er á hverjum tíma á sviði viðburðahalds.
Diplómunám í viðburðastjórnun er 60 ECTS einingar. Þar af er verknám 12 ECTS einingar. Námið er einnig undirbúningur frekara náms. Að loknu diplómanámi í viðburðastjórnun geta nemendur t.d. tekið diplómu í sjálfbærni viðburða og þar á eftir bætt við sig einu ári og lokið BA í ábyrgri stjórnun viðburða og ferðaþjónustu. Þeir nemendur sem lokið hafa diplómanámi í sjálfbærni viðburða geta tekið þetta nám sem 2. ár til BA gráðu í ábyrgri stjórnun viðburða og ferðaþjónustu. Námið er fjarnám með staðbundum lotum sem hægt er að að taka sem fullt nám eða hlutanám.
Þú getur skoðað skipulag námsins í Uglu, kennsluvef háskólans.