Nauðsynlegur búnaður nemenda í Hestafræðideild

Í upphafi haustannar á 1.ári:

• viðurkenndur öryggisreiðhjálmur
• reiðhanskar
• reiðskór eða reiðstígvél
• vandaður gæðahnakkur
• stallmúll með taum
• beisli og góð hringamél, mismunandi lengdir og gerðir (10,5-11,5cm)
• enskur og þýskur reiðmúll
• langir reiðtaumar 2,40-2,60 m
• reiðpískur 1,00-1,20 m
• hringtaumspískur
• hringtaumsmúll (helst með heila járnspöng)
• hringtaumstaumar (hringteymingar-taumar), breidd 1-2 cm — lengd: 2 x 8-12m eða 1 x 16-20 m
• hringtaumsgjörð
• hliðartaumar (án teygju)
• hófhlífar af mismunandi gerð og þyngd (a.m.k. einar 70-90 g kvarthlífar og einar þyngri)
• snúrumúll
• vaður 7-8 m

Á vorönn á 1. ári þarf nemandinn einnig að koma með íslenskar gæðastangir.
Á haustönn á 2. ári er mælt með að nemandinn eigi „micklem multibridle“.

Tryggingar
Nemendum er skylt að tryggja sig áður en kennsla hefst, en er í sjálfsvald sett hvort hestar þeirra eru tryggðir.