Vörunúmer: HOLAR003

Knapamerki 3

Verðm/vsk
3.900 kr.

Knapamerkin eru flestum hestamönnum á Íslandi kunn en þetta stigskipta reiðkennslukerfi telur til fimm stiga bæði á íslensku og ensku.
Markmiðið með Knapamerkjunum er að stuðla að auknum áhuga á reiðmennsku og hestaíþróttum og auðvelda aðgengi, bæta þekkingu, meðferð og notkun á hestinum.
Höfundur bókanna er Helga Thoroddsen en Knapamerkin eru í umsjón og ábyrgð Háskólans á Hólum sem er jafnframt útgefandi námsefnisins. Knapamerkin eru frábær grunnur fyrir alla hestamenn til að byggja á og bæta sig. Bóklega efnið er líklega besta og viðamesta efnið sem til er um íslenska reiðmennsku og eykur
skilning á hestinum og reiðmennsku.

Í þriðja hefti Knapamerkjanna er fjallað um:

  • Gangtegundir íslenska hestsins og þjálfun þeirra
  • Fóðrun, líkamsbygging hesta og grunnþjálfun
  • Form hestsins og hugtök sem tengjast réttri líkamsbyggingu, þjálfun s.s. misstyrk, samspora, undirlínu og yfirlínu
  • Spennu og slökun
  • Fimiþjálfun og einfaldar fimiæfingar
  • Ásetuþjálfun
  • Hindrunarstökk
  • Blaðsíðufjöldi: 101.
  • Höfundur: Helga Thoroddsen
  • Úgefandi: Háskólinn á Hólum
Verðm/vsk
3.900 kr.