Vörunúmer: HOLAR001

Knapamerki 1

Verðm/vsk
3.900 kr.

Knapamerkin eru flestum hestamönnum á Íslandi kunn en þetta stigskipta reiðkennslukerfi telur til fimm stiga bæði á íslensku og ensku.
Markmiðið með Knapamerkjunum er að stuðla að auknum áhuga á reiðmennsku og hestaíþróttum og auðvelda aðgengi, bæta þekkingu, meðferð og notkun á hestinum.
Höfundur bókanna er Helga Thoroddsen en Knapamerkin eru í umsjón og ábyrgð Háskólans á Hólum sem er jafnframt útgefandi námsefnisins. Knapamerkin eru frábær grunnur fyrir alla hestamenn til að byggja á og bæta sig. Bóklega efnið er líklega besta og viðamesta efnið sem til er um íslenska reiðmennsku og eykur
skilning á hestinum og reiðmennsku.

Í fyrsta hefti Knapamerkjanna er fjallað um:

  • Atferli, eðli, skap og skynjun hesta og hvernig maðurinn þarf að temja sér að þekkja og umgangast hestinn út frá eðlislægum forsendum hans
  • Líkamsbygging hesta
  • Hestahald, teymingar, umgengni við hesta og helstu öryggisatriði þar af lútandi
  • Gangtegundir íslenska hestsins
  • Helstu gerði reiðtygja, notkun og umhirða þeirra
  • Mismunandi ásetur og taumhald
  • Ásetuæfingar í hringteymingu
  • Blaðsíðufjöldi: 87.
  • Höfundur: Helga Thoroddsen
  • Úgefandi: Háskólinn á Hólum
Verðm/vsk
3.900 kr.