Sviðsstjóri mannauðs, gæða og rekstrar

Laust er til umsóknar starf sviðsstjóra mannauðs, gæða og rekstrar við Háskólann á Hólum.

  • Ábyrgð og helstu verkefni
    • Yfirumsjón með sviði mannauðs, gæða og rekstrar.
    • Leiðir teymi sviðsins með faglegum hætti.
    • Leiðir stefnumótun í gæðamálum, yfirumsjón með innleiðingu og eftirfylgni verkferla.
    • Sinnir fjárhagslegu eftirliti og upplýsingamiðlun til stjórnenda og háskólaráðs.
    • Leiðir árlega fjárhags- og verkáætlun háskólans í samráði við aðra stjórnendur skólans.
  • Menntunar- og hæfnikröfur
    • Háskólapróf sem nýtist í starfi.
    • Þekking og reynsla af gæðamálum, fjármálastjórnun og stefnumótun.
    • Góð leiðtogafærni, skipulagshæfileikar, frumkvæði og áreiðanleiki.
    • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og samstarfshæfni
    • Meistaragráða á sviði rekstrar, fjármála eða verkefnastjórnunar æskileg.
    • Framúrskarandi excel færni og læsi á tölvukefi.

Um 100 % stöðu er að ræða og er umsóknafrestur til og með 3. september 2021. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Launakjör eru skv. kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags. Um starfskjör, réttindi og skyldur gilda að öðru leyti lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Erla Björk Örnólfsdóttir, rektor Háskólans á Hólum. Umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf sem rökstyður áhuga og færni viðkomandi í starfið. Umsóknir og fyrirspurnir sendist á netfangið erlabjork@holar.is Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

Um skólann
Háskólinn á Hólum er elsta menntastofnun landsins, staðsett á Hólum í Hjaltadal. Við skólann er boðið upp á gæðanám á grunn- og framhaldsnámsstigi sem og öflugt rannsóknastarf. Háskólinn er miðstöð þekkingar á þremur fræðasviðum: hestafræði, ferðamálafræði og fiskeldis-, sjávar- og vatnalíffræði.

Samfélagið á Hólum
Háskólinn er sérhæfð menntastofnun þar sem nánd einstaklinga er mikil og boðleiðir stuttar. Hann er stoltur þátttakandi í fræðastarfi íslenskra háskóla og leggur sig fram um að auka auð íslensks samfélags með fjölbreyttri kennslu, góðum tengslum við atvinnulífið og öflugu fjölþjóðlegu rannsóknasamstarfi.