Hestaferðaþjónusta er ört vaxandi þáttur í íslenskri ferðaþjónustu. Mörg fyrirtæki bjóða þjónustu í tengslum við hestinn og hestamennsku. Í bókinni er sjónum beint að hestaleigum og hestaferðafyrirtækjum. Efni bókarinnar mun einnig nýtast öðrum aðilum sem annast stjórnun og rekstur minni fyrirtækja, sérstaklega í ferðaþjónustu.