Sjálfbær framleiðsla í lagareldi (SPA)

Meistaranám í sjálfbærri framleiðslu í lagareldi (SPA) er rannsóknatengt meistaranám sem boðið er upp á af Háskólanum á Hólum, Landbúnaðarháskóla Íslands, Háskólanum á Akureyri, Háskóla Íslands og Háskólasetri Vestfjarða, í samvinnu við Matís, Hafrannsóknastofnun og Náttúruminjasafn Íslands.

Þú getur skoðað skipulag námsins í Uglu, kennsluvef háskólans. Skoða uglu hér.

SPA leggur áherslu á þver- og fjölfaglega nálgun á sjálfbæra framleiðslu í lagareldi. Námið sameinar ítarlega þekkingu á líffræði og framleiðslutækni, samfélagslegum þáttum með vísindalegri nálgun og hagnýtri færni sem undirbýr nemendur fyrir störf í iðnaði, rannsóknar- og þróunarverkefnum, eða áframhaldandi doktorsnámi. Kennsla fer fram í blönduðu námsfyrirkomulagi, með stað- og fjarnámi, sem auðveldar þátttöku samhliða starfi.

SPA-námið miðar að því að:

  • samtvinna styrkleika samstarfsstofnananna til að mennta næstu kynslóð sérfræðinga á sviði fjölbreyttrar sjálfbærrar framleiðslu í lagareldi
  • auka námskeiðaframboð fyrir nemendur og aðgengi þeirra að sérhæfðum námskeiðum á milli háskólastofnana.
  • þróa ný tengslanet fyrir nemendur og samstarfsmöguleika milli akademískra stofnana, iðnaðarins, stjórnvalda og viðeigandi stofnana.

 

Sótt er um námið í gegnum umsóknargátt á heimasíðu skólans.

 

Námið er opið öllum sem lokið hafa BS prófi, með lágmarkseinkunn 6,5.

Ef þú hefur ekki bakgrunn í raunvísindum og/eða fiskeldi þarft þú að taka sérhæfð grunnnámskeið. Þú getur mótað þitt nám með fjölbreyttum tækifærum til rannsókna og með því að velja námskeið af stórum hópi valnámskeiða sem eru í boði.