Karfan er tóm.
- Háskólinn
- Háskólinn á Hólum
- Miðlæg stjórnsýsla
- Háskólasvæðið
- Stefnur og starfsreglur
- Þjónusta
- Starfsfólk
- Inspera
- Nám
- Ferðamáladeild
- Fiskeldis- og fiskalíffræðideild
- Hestafræðideild
- Hagnýtar upplýsingar
- Rannsóknir
- Vefverslun
Námið í sjálfbærrri byggðafræði er rannsóknartengt meistaranám sem boðið er upp sameiginlega á af Háskólanum á Hólum og Háskóla Íslands. Námið er því samansett af námskeiðum beggja skólanna. Náminu er ætlað að mennta einstaklinga til starfa á sviði byggða- og samfélagsþróunar í dreifðum byggðum hér á landi eða erlendis.
Námið er 120 ECTS eininga nám, þar af 30 eða 60 eininga rannsóknarverkefni. Inntökuskilyrði eru BA/BS/B.ed próf eða nám sem metið er sambærilegt. Nemendur velja á milli 30 eða 60 ECTS rannsóknarverkefnis á sínu sérsviði, sem þó skal tengjast byggðafræði á einhvern hátt, en 60 ECTS verkefni veitir aðgang að doktorsnámi. Jafnframt er námið undirbúningur fyrir doktorsnám.
Námið er í boði sem fullt nám eða hlutanám. Námsformið er fjarnám en gert er ráð fyrir að nemendur mæti í staðlotu einu sinni á önn. Þó eru valnámskeið bæði í boði í fjarnámi og staðnámi. Að öðru leyti geta nemendur sinnt náminu á þeim tíma sem þeim hentar innan ramma hvers námskeiðs. Þá spanna sum valnámskeið við Háskólann á Hólum hálfa önn (6-7 vikur) á meðan skyldunámskeið og önnur valnámskeið ná yfir alla önnina. Áhugasömum er bent á að hafa samband við Önnu Guðrúnu Edvardsdóttur, verkefnastjóra námsleiðarinnar (arun@holar.is) eða kennsluskrifstofu Háskólans á Hólum.
Námskrá í sjálfbærri byggðafræði
Þú getur skoðað skipulag námsins í Uglu, kennsluvef háskólans.