Málþing 17.mars

Nemendur í viðburðastjórnun við Háskólann á Hólum standa fyrir málþingi á Hólum í Hjaltadal 17. mars n.k. þar sem samfélagsleg áhrif viðburða verða skoðuð frá ýmsum sjónarhornum.

Fjallað verður um öryggismál viðburða, hvaða þýðingu viðburðir hafa fyrir samfélög og þá verður sérstök áhersla lögð á umhverfismál viðburða. Þá verður kastljósinu einnig beint að sértækum viðburðum eins og Landsmóti hestamanna sem fram fer á Hólum næsta sumar.

Frummælendur koma víða að, danskir sérfræðingar í umhverfismálum viðburða koma til landsins til að miðla reynslu sinni, sérfræðingar sveitarfélaga í viðburðum og sérfræðingur í skipulagi öryggismála alþjóðlegra 

við

burða. Allt skipulag viðburðarins er er í höndum viðburðastjórnunarnema á Hólum.

Málþingið fer fram á Hólum í Hjaltadal þriðjudaginn 17. mars frá kl. 13-16 og þá verður boðið upp á beint streymi frá málþinginu.

Aðgangur er ókeypis.

Skráning hér

Dagskrá

Opnunarávarp

13:00-13:05  Hólmfríður Sveinsdóttir, rektor Háskólans á Hólum.

Samfélagsleg áhrif viðburða

13:05-13:20  Þórgnýr Dýrfjörð

13:20-13:35  Þórhildur Tinna Sigurðardóttir

Öryggismál viðburða

13:35-13:50  Karl Steinar Valsson

Hlé - Veitingar

Sjálfbærni viðburða

14:05-14:30  Rasmus Hørested Jensen og Søren Stoccholm Nielsen

14:30-14:45  Sigríður Rósa Bjarnadóttir

Sértækir viðburðir - Hestatengdir viðburðir

14:45-14:55  Þórdís Anna Gylfadóttir

14:%5-15:05  Kjartan Bollason

15:05-15:15  Ingibjörg Sigurðardóttir

Pallborðsumræða 15:30-16:00