Lagareldi BS-nám

Lagareldi (BSc) er sameiginlegt grunnnám Háskólans á Akureyri og Háskólans á Hólum. Nemendur skrá sig í námið hjá Háskólanum á Akureyri og sækja námskeið við báða háskóla á hverju misseri samkvæmt sameiginlegri námskrá. Athygli er vakin á því að megnið af kennslu fer fram á íslensku.

Námið er boðið sem staðnám eða fjarnám við Háskólann á Akureyri og sem fjarnám með staðbundnum lotum við Háskólann á Hólum. Um er að ræða sveigjanlegt nám þar sem ekki er gerð krafa um daglega viðveru á háskólasvæðum. Nemendur þurfa þó að mæta í tilgreindar kennslulotur þar sem megináhersla er lögð á verkefnavinnu og fræðilegar umræður. Á milli lota er námsvinna unnin og verkefnum skilað rafrænt, og er ætlast til virkrar þátttöku meðan á lotunum stendur.

Lagareldi er krefjandi og fjölbreytt raungreinanám sem veitir traustan grunn fyrir störf í einni hraðvaxnustu atvinnugrein Íslands. Að námi loknu búa nemendur yfir þekkingu og hagnýtri færni til að takast á við sérhæfð störf í fiskeldisstöðvum og fyrirtækjum sem starfa á sviði landeldis, sjókvíaeldis, þörunga- og þararæktunar, skeldýraræktunar og öðrum greinum tengdum lagareldi.

Námið byggir á grunni náttúruvísinda, þar sem líffræði, efnafræði og stærðfræði mynda kjarnann, og leggur ríka áherslu á tengsl við atvinnulífið og raunveruleg verkefni innan greinarinnar.

Nemendur velja á milli tveggja áherslusviða:

  • líftækni
  • sjávarútvegsfræði

Sérhæfð námskeið í fiskeldi eru kennd við Háskólann á Hólum, en námskeið í líftækni eða sjávarútvegsfræði við Auðlindadeild Háskólans á Akureyri. Með þessu fá nemendur heildstæða sýn á virðiskeðju lagareldis, frá líffræði og framleiðslu til reksturs og markaða.

Hlekkur inná uglu Lagareldi Ugla