Karfan er tóm.
- Háskólinn
- Háskólinn á Hólum
- Miðlæg stjórnsýsla
- Háskólasvæðið
- Stefnur og starfsreglur
- Þjónusta
- Starfsfólk
- Inspera
- Nám
- Ferðamáladeild
- Fiskeldis- og fiskalíffræðideild
- Hestafræðideild
- Hagnýtar upplýsingar
- Rannsóknir
- Vefverslun
Nú hefur verið opnuð sérstök upplýsingasíða um uppbyggingu og þróun háskólasamstæðu Háskólans á Hólum og Háskóla Íslands. Síðan er ætluð til að vera miðlægur vettvangur fyrir uppfærðar upplýsingar um framgang verkefnisins, helstu áfanga og skipulag samstarfsins.
Markmið síðunnar er að tryggja gagnsæi og aðgengi að upplýsingum fyrir starfsfólk, nemendur og aðra hagsmunaaðila á meðan uppbygging háskólasamstæðunnar stendur yfir. Þar má finna yfirlit yfir verkefnið, fréttir og annað efni sem tengist þróun og innleiðingu samstarfsins.
Við hvetjum alla áhugasama til að kynna sér síðuna og fylgjast með framvindu verkefnisins hér:
https://holarhi.hi.is/