Ráðstefna um þjónustu með aðstoð dýra - 15. - 16. maí

Dýr í starfi með fólki – hvernig og hvers vegna?
 

Háskólinn á Hólum og Gló stuðningsfélag standa saman að alþjóðlegri ráðstefnu um dýrastudda nálgun í starfi með fólki, sem haldin verður á Hólum í Hjaltadal dagana 15.–16. maí 2026.

Ráðstefnan er ætluð öllu fagfólki og áhugafólki sem vill dýpka skilning sinn á því hvernig dýr geta stutt við vellíðan, þátttöku, nám og þroska í starfi með fólki. Hér gefst einstakt tækifæri til að kynnast nýjustu þekkingu, ólíkum sjónarhornum og reynslu þeirra sem hafa sérhæft sig á þessu sviði. Sérstök áhersla verður lögð á starf með hestum.

Meðal fyrirlesara verða sérfræðingar og fagfólk frá Íslandi, Bandaríkjunum, Bretlandi, Svíþjóð og Þýskalandi, auk kynninga frá Finnlandi, Noregi og Danmörku.

Ráðstefnan verður haldin á ensku og býður upp á vettvang fyrir fræðslu, samtal og tengslamyndun þvert á faggreinar og lönd.

Sætaframboð er takmarkað, svo mikilvægt er að tryggja sér pláss tímanlega.

Nánari upplýsingar um dagskrá ráðstefnunnar má finna hér.

Facebook event má finna hér.

Þátttökugjaldi er stillt í hóf með það að markmiði að sem flestir geti tekið þátt og fræðst um þetta áhugaverða og vaxandi svið.

Verð:

Rástefna + matur + gisting eina nótt með morgunmat = 47.000

Ráðstefna + matur = 32.000

Tryggðu þér sæti hér.

Nánari upplýsingar - audinga@holar.is


Dagskrá


Hér kynnum við fyrirlesarana okkar

 

Erika Berg

Frá janúar 2026 hefur Erika Berg starfað sem Fulbright-styrkþegi við Háskólann á Hólum, þar sem hún hefur sinnt kennslu, unnið með fagfólki og átt í samstarfi við starfsfólk skólans við þróun náms- og fræðsluefnis á sviði þjónustu með aðstoð dýra. Hún býr yfir meira en 30 ára reynslu á sviði þjónustu með aðstoð hesta (e. equine assisted services, EAS) og hefur starfað með fjölmörgum EAS-miðstöðvum í Bandaríkjunum. Hún hefur jafnframt tekið virkan þátt í starfi samtakanna Professional Association of Therapeutic Horsemanship International og Horses and Humans Research Foundation.

Erika er nú framkvæmdastjóri Bison Strides Equine Assisted Services og dósent við North Dakota State University í Fargo. Þar hefur hún þróað námsleið (minor) í EAS og kennir námskeið þar sem lögð er áhersla á inngildingu, fjölbreytileika og aðgengi.

English

Since January 2026, Erika Berg has served as a Fulbright Scholar at Hólar University, where she has been teaching, connecting with practitioners, and collaborating with faculty to develop resources for animal assisted services. She brings more than three decades of experience in equine assisted services (EAS) through her work with multiple EAS centers across the United States and active engagement with the Professional Association of Therapeutic Horsemanship International and the Horses and Humans Research Foundation.

She is currently Director of Bison Strides Equine Assisted Services Program and an Associate Professor at North Dakota State University in Fargo. At NDSU, she developed an academic minor in EAS and teaches coursework that emphasizes inclusion, diversity, and accessibility.


Nina Ekholm Fry

Nina Ekholm Fry er gestafræðimaður (Fulbright Specialist) við Háskólann á Hólum með áherslu á tengsl manna, dýra og geðheilsu. Hún er forstöðumaður hestamiðaðra verkefna (Equine Programs) við Institute for Human-Animal Connection við University of Denver í Colorado og kennari við bæði Graduate School of Social Work og Graduate School of Professional Psychology, þar sem starf hennar beinist að samþættingu samskipta við hesta í sálfræðimeðferð, auk hegðunar og velferðar hesta.

Hún er jafnframt námsumsjónarmaður sérhæfingar í samskiptum manna, dýra og umhverfis á meistarastigi (Human-Animal-Environment Interactions) og leiðir viðbótarnám fyrir fagfólk í geðheilbrigðisþjónustu sem snýr að notkun samskipta við hesta (Equine Interactions in Mental Health Practitioner Certificate).

Undanfarin 18 ár hefur starf hennar falið í sér notkun dýra í þjónustu við fólk, meðal annars í sálfræðimeðferð, bæði í Bandaríkjunum og í Evrópu. Nina er sálfræðingur og sænskumælandi finni og tekur virkan þátt í faglegu starfi sem snýr að velferð bæði fólks og dýra.

English

Nina Ekholm Fry er gestafræðimaður (Fulbright Specialist) við Háskólann á Hólum með áherslu á tengsl manna, dýra og geðheilsu. Hún er forstöðumaður hestamiðaðra verkefna (Equine Programs) við Institute for Human-Animal Connection við University of Denver í Colorado og kennari við bæði Graduate School of Social Work og Graduate School of Professional Psychology, þar sem starf hennar beinist að samþættingu samskipta við hesta í sálfræðimeðferð, auk hegðunar og velferðar hesta.

Hún er jafnframt námsumsjónarmaður sérhæfingar í samskiptum manna, dýra og umhverfis á meistarastigi (Human-Animal-Environment Interactions) og leiðir viðbótarnám fyrir fagfólk í geðheilbrigðisþjónustu sem snýr að notkun samskipta við hesta (Equine Interactions in Mental Health Practitioner Certificate).

Undanfarin 18 ár hefur starf hennar falið í sér notkun dýra í þjónustu við fólk, meðal annars í sálfræðimeðferð, bæði í Bandaríkjunum og í Evrópu. Nina er sálfræðingur og sænskumælandi finnsk og tekur virkan þátt í faglegu starfi sem snýr að velferð bæði fólks og dýra.


Gunnhildur Jakobsdóttir

Gunnhildur Jakobsdóttir, BSc í iðjuþjálfun og MSc í heilbrigðisvísindum, er yfiriðjuþjálfi hjá Gló endurhæfingu fyrir börn og ungmenni á Íslandi. Hún hefur tíu ára reynslu af iðjuþjálfun barna, bæði innan barna- og unglingageðþjónustu og endurhæfingar.

Starf hennar beinist að fjölskyldumiðaðri nálgun og að styðja þátttöku og lífsgæði barna með mati, íhlutun, ráðgjöf og notkun hjálpartækja, bæði í klínísku umhverfi, í skólum og í samfélaginu. Í starfi sínu vinnur hún með börnum með fjölbreyttar þarfir, sérstaklega þeim sem eiga í erfiðleikum með þátttöku vegna líkamlegra, vitsmunalegra, félagslegra eða skynrænna áskorana í daglegu lífi.

Gunnhildur hefur einnig menntað sig í þjónustu með aðstoð dýra og þjálfun hunda í Noregi og hefur unnið með hesta og vottaðan meðferðarhund sinn, Skottu, í starfi sínu hjá Gló. Hún er vottaður PADA matsaðili og leiðbeinandi og hefur lagt sitt af mörkum til uppbyggingar fagsins á Íslandi, meðal annars með skipulagningu ráðstefna, námskeiða og PADA-mats.

English

Gunnhildur Jakobsdóttir, BSc in Occupational Therapy, MSc in Health Science, is Head of Occupational Therapy at Gló Rehabilitation Center for Children and Youth in Iceland. She has ten years of experience in pediatric occupational therapy across child and adolescent mental health and rehabilitation services.

Her work focuses on family-centred practice and on supporting children’s participation and quality of life through assessment, intervention, consultation, and assistive devices in clinical, school, and community settings. In her practice, she supports children with a wide range of needs, particularly those who experience challenges in participation related to physical, cognitive, social, or sensory demands in everyday activities.

Gunnhildur studied animal-assisted services and dog training in Norway and has worked with horses and her certified therapy dog Skotta at the rehabilitation center. She is a certified PADA evaluator and PADA instructor and has contributed to the development of the field in Iceland through organizing conferences, seminars and PADA assessments.


Guðbjörg Eggertsdóttir

Guðbjörg Eggertsdóttir er barnasjúkraþjálfari hjá Gló endurhæfingu fyrir börn og ungmenni á Íslandi. Hún er sérfræðingur í barnasjúkraþjálfun og hefur BSc gráðu í sjúkraþjálfun frá Háskóla Íslands, MSc í heilbrigðisvísindum frá Háskólanum í Ósló og MPH í lýðheilsuvísindum frá Háskóla Íslands.

Hún hefur yfir 40 ára reynslu af sjúkraþjálfun barna í Noregi og á Íslandi, bæði á sjúkrahúsum og heilsugæslu. Starf hennar byggir á fjölskyldumiðaðri nálgun og leggur áherslu á að styðja þátttöku og lífsgæði barna með mati, íhlutun, ráðgjöf og notkun hjálpartækja í klínísku umhverfi, skólum og samfélaginu.

Í starfi sínu vinnur hún með börnum með fjölbreyttar þarfir. Stór hluti hennar starfs hefur tengst börnum með heilalömun og hefur hún stýrt eftirfylgd CPUP/CPEF á Íslandi sem landsumsjónaraðili. Hún var frumkvöðull í að innleiða sjúkraþjálfun með aðstoð hesta á Íslandi og hefur veitt þá þjónustu í yfir 20 ár hjá Gló endurhæfingu. Hún aflaði sér sérmenntunar í sjúkraþjálfun með aðstoð hesta í Gautaborg í Svíþjóð.

English

Guðbjörg Eggertsdóttir is a pediatric physiotherapist at Gló Rehabilitation Center for Children and Youth in Iceland. She is a specialist in pediatric physiotherapy and holds an BSc in Physiotherapy from the University of Iceland, MSc in Health Science (Hovedfag i helsefag) from the University of Oslo, Norway, as well as an MPH in Public Health from the University of Iceland.

She has over 40 years of experience working with children in physiotherapy in Norway and Iceland, both in hospital settings and primary health care. Her work focuses on family-centred practice and on supporting children’s participation and quality of life through assessment, intervention, consultation, and assistive devices in clinical, school, and community settings. In her practice, she supports children with a wide range of needs. A large part of her clinical work has involved children with cerebral palsy, and she has led CP follow-up in Iceland as the national coordinator for CPUP/CPEF. She was a pioneer in establishing physical therapy assisted by horses in Iceland and has provided this service for over 20 years in Gló rehabilitation center. She took her special education in physiotherapy assisted by horses in Gothenburg/Sweden where Suzanne von Dietze led the course.


Felicia Grimmenhag

Felicia Grimmenhag segir áhrifamikla sögu um hvernig lífið getur breyst á einu augnabliki. Eftir að hafa vaknað eftir þrjá daga fékk hún þær fréttir að hún hefði misst báða fætur sína. Hún mun segja frá því hvaða þýðingu hestar hafa haft í hennar lífi og hvernig ástríða hennar fyrir reiðmennsku og draumurinn um að keppa í para-reiðmennsku þróaðist.

Felicia starfar í dag hjá sænsk íslensku hestafélagi. Þar hefur hún meðal annars komið að þróunarverkefnum tengdum stafrænni þróun, sjálfbærni og starfi með ungmennaráði félagsins. Hennar stærsta hjartans mál er þó að gera íslenska hestinn aðgengilegri fyrir fólk með fötlun.

English

Felicia Grimmenhag tells the powerful story about how life can turn in a microsecond with the realisation of waking up after three days, only to be told that you have lost both your legs. She will share what horses have meant to her and how her commitment to start competing and dream of riding in para-equestrian championships have emerged.

Felicia currently works at the Swedish Icelandic Horse association. Her role has included development projects such as digitalisation, sustainability and working closely with the Youth committee. Her greatest role – and the one closest to her heart – is making the Icelandic Horse more accessible for people with disabilities.


Dr. Clare Thomas-Pino

Dr. Clare Thomas-Pino er sérfræðingur á sviði samskipta manna og dýra með bakgrunn í sálfræði, atferlisfræði dýra og geðheilbrigðisráðgjöf. Rannsóknir hennar og kennsla beinast að náttúru- og dýratengdri þjónustu, með sérstakri áherslu á gagnkvæða velferð bæði manna og dýra.

Í doktorsrannsókn sinni skoðaði Clare áhrif samskipta manna og hesta á bæði fólk og hesta út frá tengslakenningum (Attachment Theory). Hún hefur yfir tveggja áratuga reynslu af störfum á sviði þjónustu með aðstoð dýra og hefur komið að kennslu, rannsóknum og þróun námsleiða bæði í Bandaríkjunum og Bretlandi.

Clare starfar nú sem dósent við Hartpury University í Bretlandi þar sem hún leiðir meðal annars þróun meistaranáms í dýratengdri ráðgjöf og sálfræði (MSc in Animal Assisted Counselling and Psychology). Hún kennir jafnframt námskeið á sviði samskipta manna og dýra, dýra í menntun og samtímaumræðu innan anthrozoology-fræða.

Hún hefur gegnt fjölmörgum trúnaðar- og stjórnarstörfum innan alþjóðlegra fagfélaga, þar á meðal IAHAIO, SCAS og Horses and Humans Research Foundation (HHRF), þar sem hún er nú formaður vísindaráðs samtakanna.

English

Dr Clare Thomas-Pino is a specialist in human-animal interaction with an academic background in Psychology, Animal Behaviour, and Mental Health Counselling. Her research and teaching focus on nature-based and animal-assisted services, with a particular emphasis on the wellbeing of both humans and animals.

Her doctoral research explored the impacts of human-equine interaction on both horses and people through the lens of Attachment Theory. Clare has more than two decades of experience working within animal-assisted services and has contributed extensively to teaching, research, and curriculum development in both the United States and the United Kingdom.

She is currently a Senior Lecturer at Hartpury University, where she leads and develops the MSc in Animal Assisted Counselling and Psychology. She also teaches courses in human-animal interaction, animals in education, and contemporary issues in anthrozoology.

Clare has held numerous leadership and advisory roles within international professional organizations, including IAHAIO, SCAS, and the Horses and Humans Research Foundation (HHRF), where she currently serves as Chair of the Scientific Advisory Committee.


Susanne Lintermann

Susanne Lintermann er með BS-gráðu í landbúnaðarfræðum og menntun sem dýrahjúkrunarfræðingur. Hún er stofnandi Hugarró – Goats and Nature og stundar nú nám sem holistic functional practitioner.

Susanne hefur búið á Íslandi í nærri tuttugu ár og hefur einnig persónulega reynslu sem foreldri barns með sérstakar stuðningsþarfir. Starf hennar byggir á tengslum manna, náttúru og dýra, þar sem hún vinnur meðal annars með geitur í þjónustu sem styður vellíðan og tengslamyndun.

Á ráðstefnunni mun Susanne kynna starf sitt og reynslu af því að vinna með geitur sem hluta af náttúru- og dýratengdri þjónustu.

Facebook & Instagram: @goatsandnaturehugarro


Susanne Lintermann holds a BS degree in Agriculture and is trained as an animal nurse. She is the founder of Hugarró – Goats and Nature and is currently training as a holistic functional practitioner.

Having lived in Iceland for nearly 20 years, Susanne also brings personal experience as the mother of a neurodiverse child. Her work focuses on the connection between humans, animals, and nature, particularly through working alongside goats in wellbeing-oriented and nature-based services.

At the conference, Susanne will introduce her work and share her experiences of partnering with goats in animal-assisted and nature-based practices.

Facebook & Instagram: @goatsandnaturehugarro


Nina Anna Dau

Nina Anna Dau er sérkennari á yngsta stigi Grunnskóla Vestmannaeyjabæjar og verkefnastjóri Lestrarhestaverkefnisins við skólann. Þar vinnur hún ásamt lestrarhestunum sínum að því að styðja nemendur í lestrarnámi og efla jafnframt tilfinningalegan og félagslegan styrk þeirra í skólaumhverfinu.

Nina hefur yfir 22 ára reynslu af störfum sem leikskólakennari og sérkennari. Í starfi sínu leggur hún áherslu á jákvæð tengsl, vellíðan barna og fjölbreyttar leiðir til náms og þátttöku.

Á ráðstefnunni mun Nina fjalla um reynslu sína af Lestrarhestaverkefninu og hvernig hestar geta stutt við nám, sjálfstraust og félagsfærni barna.


Nina Anna Dau is a special education teacher at the primary level in Vestmannaeyjar Primary School and project manager of the Reading Horses project. Together with her reading horses, she supports students in literacy learning while also promoting emotional and social wellbeing within the school environment.

Nina has worked as a preschool teacher and special education teacher for over 22 years. Her work emphasizes positive relationships, children’s wellbeing, and inclusive approaches to learning and participation.

At the conference, Nina will share her experience with the Reading Horses project and discuss how horses can support literacy, confidence, and social development in children.