Grunnnámskeið 1 í skeifnasmíði

Háskólinn á Hólum býður upp á grunnnámskeið í skeifnasmíði á vorönn 2026. Námskeiðin fara fram í járningaraðstöðu skólans og eru ætluð þeim sem hafa mikla reynslu af járningum og vilja efla færni sína í skeifnasmíði.

Grunnnámskeið 1

Á námskeiðinu er farið yfir grunnatriði skeifnasmíði og öðlast nemendur færni til að smíða skeifu með fjaðragötum. Námskeiðið er eingöngu ætlað þeim sem hafa mikla reynslu af járningum.

Búnaður sem þátttakendur þurfa að koma með:

  • Smíðahamar

  • Eldtöng 8 mm og 10 mm

  • Stimpilhamar

  • Fjaðragatari

Kennari á námskeiðunum er Kristján Elvar Gíslason og fer kennsla fram milli kl. 9:00 og 16:00.

Verð fyrir hvert námskeið er 40.000 kr.
Skráning fer fram hér - Grunnnámskeið 1 í skeifnasmíði 3.-4. apríl | Háskólinn á Hólum

Nánari upplýsingar veitir Kristján Elvar á netfanginu elvar@holar.is.