Karfan er tóm.
- Háskólinn
- Háskólinn á Hólum
- Miðlæg stjórnsýsla
- Háskólasvæðið
- Stefnur og starfsreglur
- Þjónusta
- Starfsfólk
- Inspera
- Nám
- Ferðamáladeild
- Fiskeldis- og fiskalíffræðideild
- Hestafræðideild
- Hagnýtar upplýsingar
- Rannsóknir
- Vefverslun
- Viðburðir
Karfan er tóm.
Hvernig getum við endurhugsað úrgang frá fiskeldi og matvælaframleiðslu? Hvaða tækifæri felast í því að breyta frárennsli, seyru og öðrum aukaafurðum í verðmætar auðlindir?
Háskólinn á Hólum og Ísponica bjóða til eins dags námskeiðs þar sem sjónum verður beint að hringrásarhagkerfi, sjálfbærni og nýsköpun í fiskeldi og matvælaframleiðslu. Markmið námskeiðsins er að kynna hagnýtar leiðir til að auka nýtingu auðlinda, draga úr sóun og skapa ný verðmæti úr efnum sem oft eru skilgreind sem úrgangur.
Á námskeiðinu verða flutt erindi af sérfræðingum úr rannsóknum, atvinnulífi og nýsköpunargeiranum. Meðal umfjöllunarefna verða nýting frárennslis og seyru frá fiskeldi, aquaponics, ormamolta, hagfræðileg líkön hringrásarlausna, sjálfvirknivæðing og gervigreind í matvælaframleiðslu, auk annarra leiða til að efla sjálfbærni og bæta nýtingu auðlinda.
Námskeiðið leiðir saman rannsakendur, fagfólk úr atvinnulífinu, frumkvöðla og aðra áhugasama til að deila reynslu, hugmyndum og raunverulegum dæmum frá Íslandi og erlendis.
Sem hluti af dagskránni verður farið í vettvangsheimsókn til Ísponica á Hofsósi. Þar gefst þátttakendum kostur á að kynnast aquaponics- og hringrásarverkefni í uppbyggingu og sjá hvernig hugmyndir um sjálfbæra nýtingu auðlinda eru útfærðar í framkvæmd.
Námskeiðið hentar starfsfólki í atvinnulífinu, nemendum, rannsakendum, sveitarfélögum, frumkvöðlum og öllum þeim sem hafa áhuga á sjálfbærum matvælakerfum og hringrásarlausnum í fiskeldi.
Þátttakendur sem sækja námskeiðið fá afhent þátttökuskírteini.
Þátttaka er þátttakendum að kostnaðarlausu, en skráning er nauðsynleg.
Skráningarfrestur er til 15. júní.
Dagskrá / Schedule
9:00 - 9:30 - Skráning og kaffi / Check-in and coffee
9:30 - 9:40 - Setning námskeiðs og kynning / Welcome and introduction
9:40 - 10:00 - „Rannsóknir við Háskólann á Hólum – yfirlit“, Eva Kuttner / “Research at Hólar University: An overview”, by Eva Kuttner
10:00 - 11:30 - „Sjálfvirknivæðing daglegra verkefna“, Victor Lobanov. Notkun Raspberry Pi og gervigreindar til að leysa smærri verkefni og áskoranir í rekstri framleiðsluaðstöðu. / “Automating the busywork,” by Victor Lobanov. Using Raspberry Pi and AI to solve small issues around the farm.
11:30 - 11:50 - „Aquaponískar aðferðir sem auðlind á Íslandi“, Amber Monroe. Kynning á því hvernig nýta má þætti aquaponics innan íslenskrar garðyrkju og fiskeldis. /“Aquaponic methods as a resource in Iceland,” by Amber Monroe. Presentation of how aquaponic approaches can be applied within Icelandic horticulture and aquaculture.
12:00 - 13:00 - Hádegisverður í boði í mötuneyti Háskólans á Hólum / Lunch provided in the university cafeteria
13:00 - 13:20 - „Frá úrgangi til auðlindar: Að loka næringarefnahringnum í fi skeldi“, Sven-Ole Meiske. Samanburður á mismunandi úrgangsstraumum úr fi skeldi til framleiðslu á ormamoltu og moltutei. / “From Waste to Resource: Closing the Nutrient Loop in Aquaculture,” by Sven-Ole Meiske. Comparing aquaculture waste streams for vermicompost and compost tea production.
13:20 - 14:20 - „Að mæta tvíþættri áskorun sjálfbærni og rekstrarhæfni“, Victor Lobanov. Hvernig nýta má hagfræðileg líkön til að styðja við sjálfbær og fjárhagslega hagkvæm matvælaframleiðslukerfi á Íslandi. / “Meeting the dual challenge of economic viability and sustainability,” by Victor Lobanov. Exploring how economic modelling can support sustainable and financially viable food production systems in Iceland.
14:20 - 15:00 - Umræður og verkefnavinna í litlum hópum / Discussion and small-group activity
15:15 - Ferð til Hofsóss og heimsókn til Ísponica, fyrirtækis í uppbyggingu á sviði aquaponics og hringrásar í matvælaframleiðslu / Travel to Hofsós and Ísponica, a developing aquaponics and circular food production facility
17:30 - Dagskrárlok í Hofsósi og afhending þátttökuskírteina / Conclusion of the day in Hofsós and presentation of course participation certifi cates
18:30 - Kvöldverður og félagsleg samvera í boði í mötuneyti Háskólans á Hólum / Dinner and social networking provided in the university cafeteria
