Vörunúmer: HOLAR004

Knapamerki 4

Verðm/vsk
4.900 kr.

Knapamerkin eru flestum hestamönnum á Íslandi kunn en þetta stigskipta reiðkennslukerfi telur til fimm stiga bæði á íslensku og ensku.
Markmiðið með Knapamerkjunum er að stuðla að auknum áhuga á reiðmennsku og hestaíþróttum og auðvelda aðgengi, bæta þekkingu, meðferð og notkun á hestinum.
Höfundur bókanna er Helga Thoroddsen en Knapamerkin eru í umsjón og ábyrgð Háskólans á Hólum sem er jafnframt útgefandi námsefnisins. Knapamerkin eru frábær grunnur fyrir alla hestamenn til að byggja á og bæta sig. Bóklega efnið er líklega besta og viðamesta efnið sem til er um íslenska reiðmennsku og eykur
skilning á hestinum og reiðmennsku.

Í fjórða hefti Knapamerkjanna sem er auk þess það viðamesta og tengir við stig 1, 2 og 3. Farið er nokkuð djúpt í viðfangsefnin sérstaklega hugtakanotkun og skilning auk þess sem gerðar eru kröfur til knapans um að temja sér nákvæm vinnubrögð við þjálfum hestsins. Helstu atriði sem fjallað er um í heftinu:

  • Knapinn og forsendur hans til að stunda hestamennsku
  • Helstu þjálfunarhugtök og skilgreiningar þeirra
  • Framhaldsþjálfun fimiæfinga og gangtegunda 
  • Blaðsíðufjöldi: 194.
  • Höfundur: Helga Thoroddsen
  • Úgefandi: Háskólinn á Hólum
Verðm/vsk
4.900 kr.