Alþjóðleg athygli á járninganámi við Háskólann á Hólum

Nýverið birtist viðtal við Kristján Elvar Ívarsson, kennara við Hestafræðideild Háskólans á Hólum, á vefnum hest.no, sem er leiðandi miðill um hestamennsku í Noregi og Svíþjóð. Þar er fjallað um metnaðarfulla vinnu við þróun nýs náms í skeifnasmíði og járningum á Hólum.

Í viðtalinu er lögð áhersla á að efla faglega stöðu járningamanna á Íslandi og byggja upp markvissa menntun sem tekur mið af sérstöðu íslenska hestsins. Verkefnið er hluti af vaxandi áherslu á fagmennsku og velferð hesta í alþjóðlegri hestamennsku.

Á Hólum er unnið að því að þróa nám sem mun bæði nýtast íslenskum nemendum og höfða til alþjóðlegs markhóps. Nú þegar hefur áhugi borist frá erlendum járningamönnum sem vilja sérhæfa sig í íslenska hestinum og þeim áskorunum sem tengjast gangtegundum hans.

Viðtalið undirstrikar sterka stöðu Háskólans á Hólum sem miðstöð þekkingar og menntunar á sviði hestamennsku og sýnir hvernig starf skólans vekur aukna athygli á alþjóðavettvangi.

Lesa má viðtalið í heild sinni hér - hest.no