Alþjóðleg vinnuvika um lax og silunga á Hólum

Dagana 2.–7. mars 2026 fór fram alþjóðleg vinnuvika á Hólum þar sem um 35 rannsakendur, doktorsnemar og nýdoktorar frá Evrópu og Norður-Ameríku komu saman til að fjalla um rannsóknir á göngufiskum, svo sem laxi og silungi.

Vikan hófst í Reykjavík með heimsókn í Hafrannsóknastofnun þar sem þátttakendur fengu innsýn í rannsóknarstarf á Íslandi. Í framhaldinu færðist dagskráin að Hólum þar sem haldnar voru fyrirlestra- og umræðulotur um lykilþemu á borð við vistfræði, erfðafræði, verndun og stjórnun fiskistofna.

Nemendur og ungt vísindafólk fengu einnig tækifæri til að kynna eigin verkefni, bæði í fyrirlestrum og með veggspjöldum. Slíkt skapar mikilvægan vettvang fyrir tengslamyndun og faglega þróun.

Hluti af dagskránni var vettvangsferð þar sem þátttakendur kynntust íslenskri náttúru og rannsóknaaðstöðu, auk þess sem verðlaun voru veitt fyrir framúrskarandi kynningar.

Vinnuvikan var afar vel heppnuð og undirstrikaði mikilvægi alþjóðlegs samstarfs í rannsóknum og verndun fiskistofna.

 

Hægt er að lesa nánari frétt hér - holaraguatic.is