Karfan er tóm.
- Háskólinn
- Háskólinn á Hólum
- Miðlæg stjórnsýsla
- Háskólasvæðið
- Stefnur og starfsreglur
- Þjónusta
- Starfsfólk
- Inspera
- Nám
- Ferðamáladeild
- Fiskeldis- og fiskalíffræðideild
- Hestafræðideild
- Hagnýtar upplýsingar
- Rannsóknir
- Vefverslun
Karfan er tóm.
O.C.E.A.N.: Úthafs- og strandumhverfi Atlantshafsins
O.C.E.A.N.: Offshore and Coastal Environments in the Atlantic
Á dögunum var samankomið í Skálavík (Scalloway) á Hjaltlandseyjum í Skotlandi hópur vísinda- og fræðafólk frá eyjasamfélögum sitt hvoru megin Norður Atlandshafsins. Tilgangurinn var að ræða þverfaglegt rannsóknarsamstarf tengt bláa hagkerfinu svokallaða (e. The Blue Economy).
Laufey Haraldsdóttir lektor í ferðamáladeild sótti fundinn, ásamt kollegum frá Háskólanum í Færeyjum, Háskóla hálandanna og eyja í Skotlandi (UHI) og Háskólans á Prins Edward eyju (PEI) á austurströnd Kanada. Inn á fundinn komu einnig ýmsir aðilar úr samfélaginu á Hjaltlandseyjum tengt sjávarútvegi og fiskeldi, minja- og safnastarfi, ferðamálum o.fl. Í fjarfundarkerfi sátu fundinn aðilar tengdir bláa hagkerfinu m.a. frá Írlandi og Nýfundnalandi og Labrador.
Markmið vinnufundarins var að ræða möguleika á rannsóknarsamstarfi þvert á náttúru-, félags- og hugvísindi þar sem strand- og eyjasamfélög í dreifðum byggðum þessa svæðis eru í brennidepli. Áhersla er á að skoða efnahagslega, umhverfislega og samfélagslega þætti þar sem takmarkið er að finna leiðir til að styðja við samfélög sem þegar upplifa áhrif loftslagsbreytinga á umhverfi, samfélög og efnahag. Mikilvægur hlut verkefnisins verður að samþætta vísinda- og fræðastarf staðbundinni þekkingu á umhverfi, atvinnuháttum og sögu samfélaganna.
Verkefnið var styrkt af Samvinnusjóði Kanadísku ríkisstjórnarinnar um rannsóknir og menntun frumbyggja og samfélaga á norðurslóðum (e. the Government of Canada's Global Arctic Leadership Initiative - Indigenous and Northern Collaborative Research and Education Fund)