Karfan er tóm.
- Háskólinn
- Starfsfólk
- Inspera
- Nám
- Ferðamáladeild
- Fiskeldis- og fiskalíffræðideild
- Hestafræðideild
- Hagnýtar upplýsingar
- Rannsóknir
- Vefverslun
Karfan er tóm.
Þann 1. október síðastliðinn var ýtt úr vör þverfaglegu rannsóknarverkefni sem beinir sjónum að mótun sameiginlegra leiða til sjálfbærra atvinnuhátta á Norðurslóðum með því að byggja brýr milli vísindalegrar og staðbundinnar þekkingar. Verkefnið nefnist ArcticKnows og er styrkt af Horizon Europe áætlun Evrópusambandsins (Innovation Action).
Heimild: https://www.frittfallfoto.no/arktisk-blatime-ved-nesseby-kirke/
Þátttakendur eru átta frá sjö löndum. Rannsóknastofnun Finnlands um náttúru og auðlindir (LUKE) leiðir verkefnið en auk hennar taka þátt Háskóli Íslands og Háskólinn á Hólum frá Íslandi, Umeå háskólinn í Svíþjóð, Álaborgarháskólinn í Danmörku, Nattúrufræðistofnun Grænlands, Nofima í Noregi og Touch TD Ltd í Bretlandi.
Meginmarkmið verkefnisins er að efla getu strandsamfélaga á Norðurslóðum til að taka virkan þátt í að móta endurnærandi hagkerfi og lífsviðurværi á jafnréttisgrunni með því að ýta undir samstarf og samræður á milli heimafólks og vísindasamfélagsins um vistvæn og staðbundin hagkerfi sem taka mið af sögu og menningu hvers samfélags fyrir sig. Áhersla verður lögð á samnýtingu staðbundinnar þekkingar, bæði frá frumbyggjum og öðru heimafólki á staðháttum og siðvenjum annars vegar og þekkingu og aðferðum vísindasamfélagsins hins vegar við sköpun nýrrar þekkingar. Í verkefninu verður unnið með fjórum samfélögum, Kujataa (Grænland), Varangerfjörður (Noregur), Vindelälven–Juhttátahkka (Svíþjóð) og Inari (Finnland) þar sem helstu atvinnugreinarnar eru náttúrutengd ferðaþjónusta, landbúnaður, fiskveiðar og aðrar árstíðabundnar atvinnugreinar.
Traust er forsenda frjórra samskipta, samfélagið er virkur þáttakandi og gögn eru opin og gegnsæ.
Samlíf ólíkra tegunda hefur mikið vægi í verkefninu ArcticKnows og byggir á virðingu fyrir vistkerfum, dýrategundum og staðbundnum lífsháttum á þann hátt að dýr, plöntur, vatnasvið, jöklar og vistkerfi eru ekki einungis auðlindir heldur lifandi sambönd sem hafa áhrif á aðstæður og lífshætti á hverju svæði fyrir sig. Þannig verða svæði aðeins raunverulega lífvænleg þegar að fer saman valdefling andlegra og menningarlegra gilda og virðing og verndun t.d. hrygningastöðva, farleiða villtra dýra og annarra vera sem ekki teljast til mannkyns.
Með því að leggja áherslu á samtal heimafólks, frumbyggja og vísindamanna tengir ArcticKnows staðbundnar hugmyndir, sögur og aðferðir frumbyggja við vísindalega þekkingu. Væntingar verkefnisins er að afurð þess verði m.a. aðferðarfræði þar sem ný þekking getur orðið til út frá samvinnu þessara ólíku þekkingarkerfa í stað þess að vísindaþekking ráði eindregið för. Má ætla að slík nálgun hefði hagnýtan ávinning, sem gæti verið framlag til skýrari svæðisbundinnar stefnumótunar og haft áhrif á alþjóðlegar áætlanir um vistvæn hagkerfi og félags- og vistfræðilegt réttlæti.
Niðurstöður verkefnisins verða birtar opinberlega, en viðkvæm gögn verða geymd á öruggan hátt í eigu samfélaganna.
Þátttakendur í verkefninu eru:
Finnland: Natural Resources Institute (Luke)
Ísland: Háskólinn á Hólum og Háskóli Íslands
Svíþjóð: Umeå University
Grænland: Greenland Institute of Natural Resources
Noregur: Nofima
Danmörk: Aalborg University
Bretland: Touch TD Ltd
Nánari upplýsingar veita:
Verkefnastjóri, Luke: Ramcilovik-Suominen Sabaheta, sabaheta.ramcilovik-suominen@luke.fi
Skrifstofa samskiptamála: arcticknows@touchtd.com
Ísland: Anna Guðrún Edvardsdóttir, arun@holar.is , Anna Karlsdóttir, annakar@hi.is , Rannveig Ólafsdóttir, ranny@hi.is

