Ársfundur Stofnunar rannsóknasetra Háskóla Íslands

Ársfundur Stofnunar rannsóknasetra Háskóla Íslands verður haldinn fimmtudaginn 19. mars kl. 13:00–16:00 í Sögu, S-261, á annarri hæð norðurálmu Háskóla Íslands. Fundurinn er opinn öllum áhugasömum og býður upp á fjölbreytta dagskrá þar sem fræðafólk frá rannsóknasetrum víðs vegar um landið kynnir rannsóknir sínar og verkefni.

Á dagskránni eru meðal annars erindi um listrænar rannsóknir í náttúruhugvísindum, mengunarrannsóknir, vistfræði og tengsl vísinda og samfélags, auk kynninga á rannsóknarverkefnum sem unnin eru á landsbyggðinni. Einnig verður sýnd stuttmynd og fjallað um ný verkefni og framtíðartækifæri í rannsóknum.

Fundurinn hefst með setningarávarpi Silju Báru Ómarsdóttur, rektors Háskóla Íslands, og munu fjölmargir sérfræðingar frá rannsóknasetrum HÍ taka til máls yfir daginn. Fundarstjóri verður Guðrún Þóra Gunnarsdóttir, forstöðumaður Rannsóknamiðstöðvar ferðamála.

Fundinum verður streymt fyrir þá sem ekki komast á staðinn.

👉 Nánari upplýsingar og dagskrá má finna hér.