Kallað eftir hrossum í frumtamningu á vorönn - FULLBÓKUÐ PLÁSS!!

Um árabil hefur Háskólinn á Hólum átt gott samstarf við hrossaræktendur á öllu landinu um að senda skólanum hross til tamningar og þjálfunar í námskeiðið „Tamningar ll“. Það eru 2. árs nemar við Hestafræðideild sem takast á við verkefnið, undir handleiðslu reiðkennara skólans.

Nú er kallað er eftir hrossum í frumtamningu fyrir tamninga námskeiðið á vorönn 2023. Tímabilið stendur frá 9. janúar til 25. mars (samtals 11 vikur) - með fyrirvara um ófyrirséðar breytingar.

Úr námskeiðslýsingu: Tamningar II
Fjallað er um einstaklingsmiðað tamningaferli í gegnum frumtamningar og grunnþjálfun. Ítarlega er fjallað um mat og flokkun hesta í samræmi við skapgerð þeirra og mismunandi áherslur við tamninguna skv. því. Þá er einnig fjallað um áhrif byggingarlags, ganglags og líkamlegs atgervis á vinnulag.

Nemendur frumtemja fortamin tryppi þar sem lögð er áhersla á andlegt og líkamlegt jafnvægi þeirra, samstarfsvilja og traust. Fjallað er um grunnþjálfun, s.s. bætta svörun og aukið samspil hvetjandi og hamlandi ábendinga, mikilvægi framhugsunar, andlegs jafnvægis og að hreyfingar séu frjálsar og óþvingaðar. Unnið er að betra jafnvægi hestsins á gangtegundum. Ítarlega er fjallað um líkamsbeitingu, sveiganleika, jafnvægi til hliðanna og stjórn yfirlínu á grunnþjálfunarstigi. Farið er í teymingar á hesti, reið á víðavangi, vinnu við hendi og langan taum.

Forkröfur: Aðeins verður tekið á móti tryppum fæddum 2018 og 2019. Þau komi fortamin (a.m.k. bandvön). Tryppin þurfa að hafa náð góðum þroska. Æskilegt er að þau séu undan 1. verðlauna stóðhestum. Ekki er tekið við ógeltum folum.
Kostnaður - fyrir allt viðkomandi tímabil (ber ekki virðisaukaskatt), er kr. 145.000.-
Innifalið: Allt uppihald, auk járninga, ormalyfsgjafar og munnskoðun framkvæmd af dýralækni. Komi til þess að kalla þurfi til dýralækni aukalega til að sinna tryppinu (vegna slyss eða veikinda), ber eigandi ábyrgð á greiðslu kostnaðarins.
Þeim sem hafa hug á að koma hrossum að í frumtamningu á áðurnefndu tímabili er bent á að leggja inn pöntun sem allra fyrst þar sem takmarkað pláss er í boði.

Upplýsingar skulu skráðar í þetta eyðublað.