Karfan er tóm.
- Háskólinn
- Háskólinn á Hólum
- Miðlæg stjórnsýsla
- Háskólasvæðið
- Stefnur og starfsreglur
- Þjónusta
- Starfsfólk
- Inspera
- Nám
- Ferðamáladeild
- Fiskeldis- og fiskalíffræðideild
- Hestafræðideild
- Hagnýtar upplýsingar
- Rannsóknir
- Vefverslun
- Viðburðir
Karfan er tóm.
Brautskráning nemenda í hestafræði þann 23. maí
Brautskráning nemenda í hestafræði fer fram laugardaginn 23. maí. Dagurinn hefst á reiðsýningu útskriftarnemenda, sem er órjúfanlegur hluti námsloka í hestafræði við Háskólann á Hólum.
Reiðsýningin fer fram á reiðvellinum við hesthúsasvæði skólans og hefst kl. 10:00. Að henni lokinni fer fram verðlaunaafhending á hesthúsasvæðinu og síðan verður riðið til hópmyndatöku við Hóladómkirkju.
Brautskráningarathöfnin sjálf fer fram í aðalbyggingu skólans og hefst kl. 14:00.
Austan-Vatna verður með súpu og brauð til sölu í mötuneyti aðalbyggingar frá kl. 12:30–13:45. Að brautskráningu lokinni er útskrifuðum nemendum og gestum þeirra boðið til samveru með kaffi og meðlæti í mötuneyti skólans.
Föstudaginn 5. júní fer fram brautskráning nemenda við ferðamáladeild og fiskeldis- og fiskalíffræðideild Háskólans á Hólum.
Athöfnin verður haldin í aðalbyggingu skólans og hefst kl. 14:00. Að lokinni brautskráningarathöfn og myndatöku verður útskrifuðum nemendum og gestum þeirra boðið til samveru ásamt kaffi og meðlæti í mötuneyti skólans.
Háskólinn á Hólum óskar útskriftarnemendum innilega til hamingju með áfangann og hlakkar til að fagna þessum tímamótum með nemendum og aðstandendum þeirra.