Ragnheiður Halldórsdóttir hefur verið ráðin í stöðu kennslustjóra Háskólans á Hólum

Ragnheiður Halldórsdóttir hefur verið ráðin í stöðu kennslustjóra Háskólans á Hólum og mun hefja störf í ágúst.  Ragnheiður er með BA gráðu í ensku frá Háskóla Íslands, diplómu í ferðamálafræði frá Háskólanum á Hólum, MLM gráðu í forystu og stjórnun með áherslu á verkefnastjórnun frá Háskólanum á Bifröst og hefur lokið viðbótardiplómu í menntunarfræðum frá Háskólanum á Akureyri. Hún hefur sinnt fjölbreyttum störfum, m.a. setið sem varamaður í sveitastjórn Skagafjarðar og sinnt nefndarstörfum fyrir sveitarfélagið, verið skjalavörður á Héraðsskjalasafni Skagfirðinga, sinnt umsjónakennslu og verið verkefnastjóri í stoðþjónustu Grunnskólans Austan Vatna.
 
Ragnheiður er alin upp í Skagafirði og er búsett á Hólum ásamt fjölskyldu sinni. Við bjóðum hana hjartanlega velkomna til starfa.