Karfan er tóm.
- Háskólinn
 - Starfsfólk
 - Inspera
 - Nám
- Ferðamáladeild
 - Fiskeldis- og fiskalíffræðideild
 - Hestafræðideild
 - Hagnýtar upplýsingar
 
 - Rannsóknir
 - Vefverslun
 
Karfan er tóm.
Miðvikudaginn 23. júní nk. verður haldin málstofa að Hólum í Hjaltadal um ferðaþjónustu á landsbyggðinni í kjölfar Covid-19 og mikilvægi rannsókna í uppbyggingu greinarinnar. Málstofan er skipulögð af Ferðamálastofu og Ferðamáladeild Háskólans á Hólum og fer fram í stofu 202 (Hátíðarsal).
Dagskráin er eftirfarandi:  16.00 – 17.30 
1. Velkomin heim að Hólum – Erla Björk Örnólfsdóttir rektor Háskólans á Hólum 
2. Ferðamáladeild Háskólans á Hólum – ferðaþjónusta til framtíðar, Ingibjörg Sigurðardóttir deildarstjóri 
3. Horfur í ferðaþjónustu eftir Covid – Ferðamálastofa 
4. Ferðaþjónusta á Norðurlandi – Arnheiður Jóhannsdóttir framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands 
5. Ferðaþjónusta frá sjónarhóli rekstraraðila í Skagafirði – Evelyn Kuhne formaður Félags Ferðaþjónustunnar í Skagafirði 
6. Umræður
Málstofan er öllum opin og eru áhugasamir boðnir hjartanlega velkomnir heim að Hólum. 
Nánari upplýsingar veitir Ingibjörg Sigurðardóttir, inga@holar.is