FISK Seafood afhendir Háskólanum á Hólum húsnæði sitt í Hjaltadal

Gengið hefur verið frá samkomulagi á milli Háskólans á Hólum og FISK Seafood á Sauðárkróki um nýtt húsnæði fyrir fiskeldis- og fiskalíffræðideild skólans. Starfsemin hefur um langt árabil verið rekin með stuðningi FISK Seafood í húsnæði félagsins á Sauðárkróki en mun á næsta ári færast á tæplega tvö þúsund fermetra húsnæði í nágrenni skólans í Hjaltadal. Húsnæðið var áður í eigu FISK Seafood en hefur nú verið gefið skólanum ásamt myndarlegum fjárstyrk til þess að flytja búnað deildarinnar og koma honum fyrir í nýjum húsakynnum. Með þessu undirstrikar FISK Seafood vilja sinn til þess að styðja áfram við bakið á þeirri mikilvægu starfsemi sem háskólinn starfrækir á sviði rannsókna og kennslu í fiskeldis- og fiskalíffræðideild sinni.

FISK Seafood áformar umtalsverðar byggingarframkvæmdir vegna nýs hátæknifrystihúss og fiskvinnslu á athafnasvæði sínu við höfnina á Sauðárkróki. Á meðal mannvirkja sem þurfa að víkja er húsnæði sem skólinn hefur haft afnot af án endurgjalds í tæpa tvo áratugi. Aðstaðan sem FISK Seafood hefur nú gefið skólanum hýsti áður bleikjueldi Hólalax í Hjaltadal sem var í eigu FISK Seafood en hefur nú verið lagt af. Er vonast til þess að þessi rúmgóðu húsakynni geti nýst skólanum um langa framtíð.

Hólmfríður Sveinsdóttir, rektor Háskólans á Hólum segist afar þakklát fyrir þessa höfðinglegu gjöf: „Það hefur auðvitað verið skólanum afar dýrmætt að hafa getað rekið starfsemi deildarinnar undir þessu þaki FISK Seafood á Háeyri í þennan langa tíma. Um mitt næsta ár verða þau þáttaskil að við flytjum deildina í eigið húsnæði í nágrenni skólans sem er mikilvægt skref í áttina að framtíðaráformum um byggingu á nýju kennslu- og rannsóknahúsnæðis á Sauðárkróki fyrir starfsemi Fiskeldis- og fiskalíffræðideildarinnar.“

Friðbjörn Ásbjörnsson, framkvæmdastjóri FISK Seafood: „Þetta er sóknarsinnað samkomulag fyrir báða aðila. Skólinn getur haldið áfram að byggja upp þessa mikilvægu deild án óvissu um húsnæðismál hennar og við höldum áfram að þróa aðstöðu okkar á Háeyrinni til móts við nýjar kröfur og nauðsynlega samkeppnishæfni. Með þessu framlagi okkar getum við áfram litið á okkur sem öflugan bakhjarl vísindastarfs sem skiptir þjóðina alla miklu máli.“

Sauðárkróki 17. ágúst 2022
Fréttatilkynning frá FISK Seafood og Háskólanum á Hólum.