Karfan er tóm.
- Háskólinn
- Háskólinn á Hólum
- Miðlæg stjórnsýsla
- Háskólasvæðið
- Stefnur og starfsreglur
- Þjónusta
- Starfsfólk
- Inspera
- Nám
- Ferðamáladeild
- Fiskeldis- og fiskalíffræðideild
- Hestafræðideild
- Hagnýtar upplýsingar
- Rannsóknir
- Vefverslun
- Viðburðir
Karfan er tóm.
Í dag stendur Fulbright á Íslandi fyrir Fulbright Forum þar sem níu bandarískir Fulbright-styrkþegar kynna verkefni sín og reynslu af dvöl sinni á Íslandi. Viðburðurinn fer fram í húsnæði Fulbright á Íslandi í Reykjavík og verður jafnframt streymt á Zoom.
Meðal fyrirlesara er Erika Berg, Fulbright-styrkþegi við Háskólann á Hólum, sem mun fjalla um þróun náms og rannsóknatækifæra á sviði þjónustu með aðstoð hesta við skólann. Fyrirlestur hennar ber heitið Development of an Equine Assisted Services Curriculum and Research Opportunities at Hólar University.
Erika hefur starfað við Háskólann á Hólum frá janúar 2026 og komið að kennslu, þróun náms- og fræðsluefnis og samstarfi við fagfólk á sviði þjónustu með aðstoð dýra. Hún býr yfir yfir 30 ára reynslu á sviðinu og starfar jafnframt sem dósent við North Dakota State University í Bandaríkjunum.
Fulbright Forum er árlegur vettvangur þar sem styrkþegar kynna rannsóknir sínar og verkefni sem tengjast Íslandi og íslensku samfélagi. Verkefnin sem kynnt verða í ár spanna fjölbreytt svið, allt frá loftslagsmálum og norðurslóðarannsóknum til menntunar, aðgengis og þjónustu með aðstoð dýra.
👉 Nánari upplýsingar um viðburðinn og streymi má finna hér:
Fulbright Forum May 7th