Gabrielle birtir fyrstu vísindagreinina úr doktorsverkefninu sínu!

Gabrielle birtir fyrstu vísindagreinina úr doktorsverkefninu sínu!

Frábærar fréttir! Gabrielle Ladurée, sem vinnur að doktorverkefni sínu við Fiskeldis- og fiskalíffræðideild Háskólans á Hólum hefur birt sína fyrstu vísindagrein. Gabríelle vinnur undir handleiðslu Stefáns Óla Steingrímssonar, í samvinnu við Lauru K. Weir og David Benhaïm.

Greinin heitir: “Do personality traits measured in the lab correlate with corresponding behaviours in the wild? Insights from stream-dwelling Arctic charr (Salvelinus alpinus)”, og birtist 5. Janúar í tímaritinu Behavioral Ecology and Sociobiology.

Hér er stutt lýsing á innihaldi greinarinnar:

Sumarið 2022 rannsökuðum við bleikjuseiði til að kanna hvort atferli mælt við tilraunaaðstæður endurspegli sambærilegt atferli fiska við náttúrulegar aðstæður. Við mældum því sömu einstaklingana fyrir atferliþáttum eins og áræðni (þ.e.a.s., hversu líkleg seiði eru til að taka áhættu) og árásarhneigð (þ.e.a.s., hversu oft þau ráðast á aðra fiska), fyrst við staðlaðar tilraunaaðstæður og síðan í netbúrum í sínum náttúrulegu heimkynnum. Þó svo atferli bleikjuseiðanna hafi mælst svipað við endurtekna mælingu við sömu aðstæður, þá var engin fylgni á milli “sambærilegs” atferlis þegar það var mælt í tilraunastofu annarsvegar, eða við náttúrulegar aðstæður hinsvegar. Þessar niðurstöður benda til þess að stöðluð atferlispróf, sem framkvæmd eru við tilraunaaðstæður endurspegli ekki endilega hvernig dýr hegði sér við flóknari aðstæður úti í náttúrunni, og benda því til þess að ekki sé nóg að beita einungis einföldum stöðluðum prófum, þegar kanna á áhrif ákveðins atferlis við raunverulegar aðstæður.

Smelltu hérna til að sjá alla greinina.

 

 Hlekkur á frétt