Karfan er tóm.
- Háskólinn
- Háskólinn á Hólum
- Miðlæg stjórnsýsla
- Háskólasvæðið
- Stefnur og starfsreglur
- Þjónusta
- Starfsfólk
- Inspera
- Nám
- Ferðamáladeild
- Fiskeldis- og fiskalíffræðideild
- Hestafræðideild
- Hagnýtar upplýsingar
- Rannsóknir
- Vefverslun
Karfan er tóm.
Háskólinn á Hólum býður upp á grunnnámskeið í skeifnasmíði á vorönn 2026. Námskeiðin fara fram í járningaraðstöðu skólans og eru ætluð þeim sem hafa mikla reynslu af járningum og vilja efla færni sína í skeifnasmíði.
Kennari á námskeiðunum er Kristján Elvar Gíslason og fer kennsla fram milli kl. 9:00 og 16:00.
7.–8. mars – Grunnnámskeið 1
3.–4. apríl – Grunnnámskeið 1
24.–25. apríl – Grunnnámskeið 2
Verð fyrir hvert námskeið er 40.000 kr.
Skráning fer fram hér - Grunnnámskeið í skeifnasmíði | Háskólinn á Hólum
Nánari upplýsingar veitir Kristján Elvar á netfanginu elvar@holar.is.
Á námskeiðinu er farið yfir grunnatriði skeifnasmíði og öðlast nemendur færni til að smíða skeifu með fjaðragötum. Námskeiðið er eingöngu ætlað þeim sem hafa mikla reynslu af járningum.
Búnaður sem þátttakendur þurfa að koma með:
Smíðahamar
Eldtöng 8 mm og 10 mm
Stimpilhamar
Fjaðragatari
Framhaldsnámskeið í skeifnasmíði þar sem nemendur öðlast færni til að smíða skeifu með falsi, fjaðragötum og uppslætti. Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa mikla reynslu af járningum og hafa lokið Grunnnámskeiði 1 eða hafa sambærilega reynslu.
Búnaður sem þátttakendur þurfa að koma með:
Smíðahamar
Eldtöng 8 mm og 10 mm
Stimpilhamar
Falshamar
Fjaðragatari
Grunnnámskeið í skeifnasmíði – vorönn 2026 | Háskólinn á Hólum