Háskólaráð samþykkir endurskoðaða gæðastefnu og rannsóknarstefnu Háskólans á Hólum

Gæðastefna Háskólans á Hólum setur ramma um gæðastarf skólans og mótar áherslur þess til framtíðar. Markmið stefnunnar er að efla gæði náms, kennslu og rannsókna og tryggja nemendum öflugt stuðningsumhverfi sem stuðlar að góðri námsupplifun og árangri.

Í stefnunni er lögð áhersla á hringrás stöðugra umbóta þar sem endurgjöf frá nemendum og starfsfólki, ásamt greiningu á gögnum og árangursmati, er nýtt til að þróa starfsemi skólans, móta stefnu og bæta verklag.

Jafnframt samþykkti háskólaráð endurskoðaða rannsóknarstefnu Háskólans á Hólum. Stefnan skilgreinir sameiginleg viðmið og áherslur í rannsóknarstarfi skólans og fjallar meðal annars um akademískt frelsi, vandaða rannsóknarhætti, tengsl rannsókna og kennslu og samstarf við atvinnulíf og samfélag.

Markmið rannsóknarstefnunnar er að styðja við öflugt, ábyrgt og alþjóðlega samkeppnishæft rannsóknastarf sem styrkir stöðu Háskólans á Hólum sem rannsóknar- og menntastofnun.

Stefnurnar endurspegla metnað Háskólans á Hólum til að viðhalda háum gæðakröfum í öllu starfi skólans og skapa traustan grunn fyrir áframhaldandi þróun náms, kennslu og rannsókna.

Nýju stefnurnar má nálgast á heimasíðu háskólans:

Gæðastefna Háskólans á Hólum
Rannsóknarstefna Háskólans á Hólum