Háskólinn á Hólum tekur þátt í Háskólalestinni

Háskólinn á Hólum tekur þátt í Háskólalestinni, samstarfsverkefni með Háskóla Íslands, þar sem markmiðið er að kynna háskólastarf og vísindi fyrir ungu fólki.

Föstudaginn 17. apríl verður boðið upp á námskeið fyrir nemendur á eldra stigi grunnskóla í Skagafirði sem fram fer í Árskóla á Sauðárkróki. Námskeiðið er í umsjón Fiskeldis- og fiskalíffræðideildar og fá nemendur þar innsýn í spennandi heim fiskeldis og líffræði.

Laugardaginn 18. apríl verður síðan opið hús í Árskóla frá kl. 11:00–14:00 þar sem Háskólinn á Hólum kynnir fyrir gestum nám og starf skólans. Þar gefst tækifæri til að fræðast um námsleiðir og fá innsýn í fjölbreytta starfsemi Háskólans á Hólum.

Við hvetjum alla áhugasama til að líta við og kynnast starfi Háskólans á Hólum.