Karfan er tóm.
- Háskólinn
- Starfsfólk
- Inspera
- Nám
- Ferðamáladeild
- Fiskeldis- og fiskalíffræðideild
- Hestafræðideild
- Hagnýtar upplýsingar
- Rannsóknir
- Vefverslun
Karfan er tóm.
Stjórn og starfsfólk Gæðamats háskóla heimsótti Háskólann á Hólum síðastliðinn þriðjudag. Tilgangur heimsóknarinnar var að fá kynningu á starfsemi háskólans, hlutverki hans og framtíðarsýn. Stjórnin heimsækir reglulega íslenska háskóla til að viðhalda góðri þekkingu á íslensk háskólaumhverfi.
Allar deildir háskólans kynntu starfsemi sína fyrir hópnum auk þess sem hópurinn fékk kynningu rektors á framtíðarsýn háskólans og kynningu framkvæmdastjóra á stjórnsýslu.
Hólar skörtuðu sínu fegursta og veðrið lék við hópinn þegar hann skoðaði háskólasvæðið og aðstöðu hestafræðideildar.
Gæðamat Háskóla er stofnun sem hefur umsjón með reglulegum gæðaúttektum íslenskra háskóla. Nánar má kynna sér starsemi þeirra á heimasíðu þeirra: Icelandic Agency for Quality Assurance