Karfan er tóm.
- Háskólinn
- Háskólinn á Hólum
- Miðlæg stjórnsýsla
- Háskólasvæðið
- Stefnur og starfsreglur
- Þjónusta
- Starfsfólk
- Inspera
- Nám
- Ferðamáladeild
- Fiskeldis- og fiskalíffræðideild
- Hestafræðideild
- Hagnýtar upplýsingar
- Rannsóknir
- Vefverslun
Karfan er tóm.
Hestadagar á Hólum hafa á undanförnum árum orðið að föstum lið í samstarfi á milli Hestafræðideildar Háskólans á Hólum og grunnskólum í Skagafirði. Í síðustu viku komu nemendur í 9. bekk á Hóla og tóku þátt í þriggja daga námskeiði þar sem þeir fengu tækifæri til að kynnast hestamennsku og starfi deildarinnar.
Á námskeiðinu fengu nemendur bæði bóklega og verklega kennslu þar sem farið var yfir helstu grunnatriði í umgengni við hesta, reiðmennsku og öryggi í kringum hestinn. Nemendur fengu þannig innsýn í það fjölbreytta starf sem tengist íslenska hestinum og hestamennsku.
Fyrir marga þátttakendur var þetta í fyrsta sinn sem þeir komust í návígi við hesta og prófuðu reiðmennsku. Nemendur tóku þátt af miklum áhuga og voru Hestadagarnir bæði lærdómsríkir og skemmtilegir fyrir alla sem tóku þátt.
Takk kærlega fyrir komuna