Kostur frá Hólum stal senunni

Í þessari viku eru nemendur á 3. ári að taka knapamerkjadómarapróf í námskeiðinu Kennslufræði V.

Einn af bestu skólahestum okkar, Kostur frá Hólum (fæddur 2010), fékk að vera laus eftir að hafa sýnt verkefnið sitt með knapa. Á meðan nemendur dæmdu næsta hest og knapa hafði Kostur þó allt annað í huga – hann kaus heldur að sníkja klapp og samveru hjá nemendum en að velta sér.

Hann fékk að sjálfsögðu eins mikið klapp og hann vildi.