Kynbótasýningar á Hólum 2.-6. júní og 16.-20. júní 2025

Tvær kynbótasýningar verða haldnar á Hólum í sumar, dagana 2.–6. júní og 16.–20. Júní. Sýnendur geta tryggt sér aðstöðu í hesthúsinu Brúnastöðum, þar sem boðið er upp á leigu á stíum (Hesthólar ehf) fyrir 2.000 kr. á dag og fyrir fóður og undirburð (Hólaskóli) á 1500 kr. á dag. Pantanir á stíuplássum sendist á netfangið: hesthus@holar.is, þar sem tilgreina þarf fjölda hesta,komudag þeirra og fjölda nátta, nafn og símanúmer tengiliðs, auk nafns og kennitölu greiðanda. Frekari upplýsingar veitir Ágústa í síma 771 3881.

 

Hádegismatur verður seldur í mötuneyti skólans og þarf að skrá sig í gegnum netfangið austanvatna@gmail.com