Kynningar á lokaverkefnum í Hestafræðideild

Dagana 16.-17. apríl 2026 var haldin lítil ráðstefna á vegum Hestafræðideildar Háskólans á Hólum. Þetta má kallast ákveðin uppskeruhátíð hjá nemendum deildarinnar. Þarna komu fram sextán nemar sem eru á 3ja og síðasta ári í BS námi í reiðmennsku og reiðkennslu og kynntu rannsóknarniðurstöður úr sínum lokaverkefnum í BS-námskeiði.

Ráðstefnan var haldin í nýuppgerðum sal, sem áður var gamli íþróttasalurinn, í aðalbyggingu Háskólans á Hólum.

Þarna mættu til að hlýða á nemendur, starfsmenn Hestafræðideildar, stoðdeildar Háskólans, sem og rektor. Einnig mættu 1. árs nemendur Hestafræðideildar til að undirbúa sig fyrir það sem koma skal á 3. árinu, en nemendur á 2. ári eru nýlega farnir í verknám á tamninga- og þjálfunarstöðvum vítt og breitt um landið og gátu því ekki verið viðstaddir.

Öll lokaverkefnin eru rannsóknarverkefni sem byggja á að vinna úr aðfengnum gögnum eða eigin söfnun gagna, og viðfangsefnin eru fjölbreytt en öll tengd hestum og/eða knöpum. Nemendur geta valið að skrifa og kynna lokaverkefnin sín annað hvort á íslensku eða ensku.

 

Verkefnin báru eftirfarandi titla:

 

  1. Áhrif klassískrar tónlistar á hvíldarhjartslátt íslenskra hesta á nóttunni.
  2. The Influence of Classical Music on the Nocturnal Behaviour in Stabled Icelandic Horses.
  3. Short-term effects of training on back dimensions of Icelandic horses.
  4. Development of Icelandic horse breeding in Norway from 2010 to 2024.
  5. Samband skyldleikaræktunarstuðuls og hæfileikaeinkunnar hjá íslenskum hrossum sem hlutu kynbótadóm á árunum 2020-2025.
  6. Vægi, mat og erfðaframfarir á fetgangi í ræktun íslenska hestsins 2000-2025.
  7. Áhrif á hjartslátt og hegðun hesta þegar þeir eru fluttir bundnir eða lausir á hestakerru.
  8. Áhrif aðgengis að heyi á hegðunarleg og lífeðlisfræðileg viðbrögð hesta við járningu.
  9. The Impact of Contact on Autonomic Nervous System Responses: Heart Rate Changes in Familiar Human-Horse Interactions.
  10. Er munur á skrokkmælingum hrossa sem fá 9-10 fyrir hægt tölt í kynbótadómi og hrossa sem fá lægri einkunn?
  11. Áhrif framhæðar í sköpulagi íslenskra hrossa á einkunnir fyrir tölt, brokk og skeið á kynbótasýningum.
  12. Tengsl skrokkmála og einkunna fyrir skeið í kynbótadómum.
  13. Perceived Needs for Riding Instruction Among Icelandic Horse Riders in the Faroe Islands -A Survey.

 

Miklar og frjóar umræður sköpuðust um niðurstöður verkefnanna sem og um hugmyndir að frekari rannsóknarverkefnum tengdum íslenska hestinum. Margt er enn órannsakað þrátt fyrir að smám saman bætist við þekkinguna á ýmsum sviðum varðandi hestinn.

Við þökkum nemendum kærlega fyrir áhugaverðar og fræðandi kynningar og öllum sem mættu á viðburðinn fyrir þátttökuna.