Litagleði og sköpun á Hólum

Undanfarnar vikur hafa veggir Háskólans á Hólum fengið nýjan svip þegar myndlistaverk eftir börn úr leikskólanum Tröllaborg á Hólum hafa prýtt húsnæðið. Sýningin hefur vakið gleði meðal nemenda og starfsfólks og skapað hlýlegt og líflegt andrúmsloft í skólanum.

Verkin bera með sér sköpunargleði og hugmyndaflug barnanna og minna á mikilvægi listar og sköpunar í daglegu lífi. Slíkar sýningar eru jafnframt falleg áminning um tengsl Háskólans á Hólum við nærsamfélagið.

Við þökkum börnunum á Tröllaborg kærlega fyrir að deila list sinni með okkur og færa lit og gleði inn í daglegt starf á Hólum.

 

 

 

 

Hér er hægt að sjá fallegu verkin