Meistararitgerð um svifdýrasamfélög í íslenskum vötnum varin við Háskólann á Hólum

Þóra Atladóttir fjallar í meistararitgerð sinni um samfélög ferskvatnssvifkrabbadýra í íslenskum vötnum, með áherslu á árfætlur og vatnaflær. Ritgerðin, Crustacea Zooplankton Communities in Icelandic Lakes: Comparison over Time, beinir sjónum að breytingum á tegundasamsetningu yfir tíma.

Svifdýr gegna lykilhlutverki í vistkerfum ferskvatns þar sem þau eru bæði mikilvægir þörunganeytendur og fæða fyrir lífverur ofar í fæðukeðjunni.

Rannsóknin er sérstaklega mikilvæg í ljósi þeirra hröðu loftslagsbreytinga sem eiga sér stað á norðurslóðum. Í verkefninu gafst einstakt tækifæri til að bera saman tegundasamfélög í íslenskum vötnum milli tveggja tímabila, annars vegar árin 1992–1998 og hins vegar 2012–2013. Niðurstöður sýna að umtalsverðar breytingar hafa orðið á samsetningu samfélaganna á þessu tímabili.

Gísli Már Gíslason, prófessor emeritus við Háskóla Íslands, var prófdómari. Í prófnefnd voru einnig dr. Ragnhildur Guðmundsdóttir, forstöðumaður Náttúruminjasafns Íslands og aðalleiðbeinandi, Skúli Skúlason, meðleiðbeinandi og tengiliður við Háskólann á Hólum, og Stefán Óli Steingrímsson, prófessor, sem stýrði vörninni.

Í leiðbeinendahópi Þóru voru jafnframt dr. Agnes Kera Kreiling við Tjóðsavnið í Færeyjum og dr. Jón S. Ólafsson og Haraldur Rafn Ingvason við Hafrannsóknastofnun, rannsókna- og ráðgjafastofnun hafs og vatna.

Háskólinn á Hólum óskar Þóru Atladóttur innilega til hamingju með árangurinn.